Ohh ég held þú sért ekki ástfanginn af henni:) Þú ert bara mjög mikið hrifinn af henni. Losti líka. Það er einmitt einn strákur hérna í skólanum sem ég er í, og hann sagði mér að hann væri ástfanginn af mér!! Ég fékk algjört sjokk því ég þekki hann lítið, hann þekkir mig mjög lítið og ég skil ekki hvað það ætti að vera við mig sem að gerir hann ástfanginn af mér. Ef ég er hreinskilin, þá varð ég bara meirað segja pínu reið útí hann fyrir að segja þetta við mig þar sem hann þekkir mig ekki...