Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jonarnar
jonarnar Notandi frá fornöld 4 stig
Áhugamál: Windows, Linux

Re: Akira!

í Myndasögur fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Sammála því, fékk bækurnar að láni og einu vonbrigðin voru að þurfa að bíða eftir næstu bókum.. Var líka að horfa á DVD útgáfuna og hún er þónokkuð öðruvísi, endirinn er bæði ólíkur bókunum og Akira á VHS spólum… go figure. Þetta kom líka fyrir mig þegar ég las Preacher.. að vísu þurfti ég aðeins að bíða í 6 mánuði.. ekki nokkur ár eins og þeir sem fylgdust með frá byrjun :)

Re: svo mælti Zaraþústra

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Tja, ég kláraði 3/4 af bókinni áður en ég gafst hreinlega upp. Án þess að hallmæla bókinni of mikið, fannst mér bókin vera alger þvæla. Nú má örugglega segja að ég hafi ekki skilið hana, og þá bara situr við það. En ég held samt að menn upphefji bókina of mikið, bara út af hefðinni.

smá auka upplýsingar..

í Linux fyrir 24 árum, 9 mánuðum
og að auki er ég með KDE 2.2beta1..

Re: Linux á Omnibook XE3

í Linux fyrir 25 árum, 1 mánuði
Sælir, geturðu sagt hvaða Linux dreifingu þú ert að nota? Þannig hefur maður líklega hugmynd um hvaða XFree útgáfu þú hefur. Þú þarft eiginlega að vera með útgáfu 4.0.2 til að þetta verði sæmilega vandræðalaust. Red Hat 7.0 hefur útgáfu 4.0.1, sem ég held að virki, en ég hef ekki prófað það.. ég hef allaveganna bara sett upp 4.0.2, annars ætti 3.x að virka, en með þónokkrum breytingum.. Annars er XFree gluggastjórinn, eða það forrit sem sér um að teikna glugga og allt GUI á skjáinn.. Ef þú...

Re: Vandamál

í Linux fyrir 25 árum, 1 mánuði
Sælir, skráin /etc/lilo.conf inniheldur stillingar fyrir stýrikerfi sem lilo getur ræst. Þar geturðu verið með mismunandi Linux kjarna og/eða vísanir í ‘hitt’ stýrikerfið. Þú þarft að komast að því á hvaða partitioni windows er (hjá mér er það /dev/hda1) og bæta vísun á það í lilo.conf. Þetta þýðir bara hard drive(hd), tengt í fyrsta ide kapal(a) og fyrsta partitionið á þessum disk(1). Þannig að þetta verður líklega öðruvísi hjá þér. Þegar þú veist hvar windows er, þá er bara að bæta við í...

Re: Flott forrit fyrir alvöru flakkara

í Linux fyrir 25 árum, 1 mánuði
Sælir, mér líst betur á þetta en það sem ég hef séð fyrir Windows.. ég hef verið að fikta með gps tækið mitt nýlega, og fyrir þá sem vantar tengi úr gps tæki yfir í tölvu, þá er ráð að kíkja á www.pfranc.com því hann býr til plast tengin sem þarf.. Ef menn eru ekki hræddir við lóðbolta, þá er hægt að búa til t.d. rafmagnstengi í sígarettukveikjara, gagnakapal með rafmagni og hvaða hvaða.. ég er með helvíti góðan kapal sem fer í serial port og tekur rafmagn úr ps/2 lyklaborðstenginu (er með...

Re: .. hvernig er hægt að henda út linux af vél?

í Linux fyrir 25 árum, 1 mánuði
Sælir, þú getur alltaf sett linux upp á nýtt og þá yfirskrifarðu fyrri uppsetningu.. ef þú ert að dual-boota, þá geturðu losnað við LILO (sem sér um að ræsa rétt stýrikerfi) með því að t.d. ræsa upp af windows setup disk (og ræsa bara command prompt, ekki setup..) og slá inn: fdisk /mbr sem að hreinsar allar vísanir á linux út og þá geturðu komist í “hitt” stýrikerfið.. Ef þú vilt hreinsa diskinn, verður þú að ræsa vélina með linux boot disk og keyra þar fdisk (sem býr til partitionir) og...

Re: Linux á Omnibook XE3

í Linux fyrir 25 árum, 1 mánuði
Sælir, ég er með Omnibook XE3 og það er helst tvennt sem að þarf að hafa í huga. Skjákortið er ekki stutt almennilega fyrr en með XFree 4.0.2 og því þarftu helst að ná í nýjustu útgáfu.. og netkortið virkar ekki nema að þú náir í nýjan driver og þýðir kjarnann upp á nýtt. Þetta er svosum ekki mikið mál og allaveganna fjórar síður á netinu sem fara í gegnum þetta. Ég er með Debian Woody hjá mér sem var ekkert mál að setja upp. Debian Potato virkar líka sem og Red Hat 7.0. Engin Linux dreifing...

Wandamál með Chessmaster 7000

í Vélbúnaður fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Að vísu hef ég lent í vandræðum með Chessmaster 7000, hann notar alveg sér gui sem er voða sætt en hrynur endalaust undir Win2000.. og það þó ég sé búinn að setja upp nýjasta patch :(

Re: Öhm, nei. ;)

í Linux fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Ég þurfti að skipta frá Debian yfir í Red Hat því að Debby komst ekki í gang á fartölvunni minni.. RH 7 fór mjög mjúklega inn.. og virkaði ágætlega. Hinsvegar gat ég ekki þýtt kjarnann (2.2.18 ?) aftur til þess að fá stuðning fyrir innbyggða netkortið sem fylgdi með vélinni sem er helvítis vandræði ( lítið gaman að eiga fartölvu sem er ekki hægt að komast á netið á.. )

Aukinn stuðningur við S3 skjákort

í Linux fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Jæja, þetta er einmitt það sem ég hef verið að bíða eftir… er með Omnibook Xe3 fartölvu sem hefur S3 Savage IX skjákort sem var ekki stutt í XFree 4.0 eða 4.0.1 ( nema að litlu leyti, virkaði bara hjá mér í 320X210.. ) Nú þarf ég bara að rýma aftur fyrir Linux á vélinni…
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok