Já, samkvæmt þessari mótaskrá á 1. deildin að vera í Grafarholtinu, 2. deildin á Hellu, 3. í Stykkishólmi og 4. deildin í Hveragerði. Varðandi 1. deildina kom hins vegar fram, m.a. frá formanni GR, að þeir væru ekki alveg til í að halda hana í Grafarholtinu á þeim tíma sem hún var sett á, þ.e.a.s. 27-29. ágúst. Þeir óttast að álagið á vellinum verði of mikið í ágúst. Þannig að líklegt verður að teljast að annað hvort verði sveitakeppnin á öðrum tíma eða þá á öðrum velli.