Það hefur nú komið uppá daginn að gengið hefur verið framhjá fremstu mönnum á biðlista GR inga og hefur Margeir framkvæmdarstjóri ákveðið að hleypa inn fyrrverandi liðstjóra GkJ stúlkna og núverandi landsliðs liðstjóra kvenna henni Steinunni Eggertsdóttur, en hún hefur aldrei verið á biðlista þeirra GR manna.
Hún á að sinna einhverjum störfum innan klúbbsins og einnig hef ég óstaðfestar heimildir að GR ingar hafi reynt að fá tvær af fremstu kvenkylfingum þessa lands þær Nínu og Helgu úr Mosfellsbænum til liðs við sig.

Athyglisvert ekki satt ?