Ég er ekki sáttur við þetta. Það er erfitt að lesa þetta og þessi ljósblái litur er bara ekki að gera sig. Þetta virðist allt svo blurað. Texti frá símanum: “Vefurinn er forritaður í töflulausu HTML en það auðveldar sjónskertum að nýta sér þjónustu Símans á vefnum (nýta má T-táknin til að stækka texta á vefnum),” Ég sé ekki að ólæsilegur vefur hjálpi sjónskertum nokkurn skapaðan hlut. Sjálfur er ég með tölvupóstinn hjá centrum.is sem er í eigu Símans. Þar er bara óþægilegt að sjá milli lína....