Þessi mynd er eldgömul. Sennilega frá svona 1980 - 1985. Hún er að mig minnir einhverskonar geimfantasía líkt og Star Wars. Þó í lélegri kantinum og sennilega stæling á Star Wars. Þó ekki alveg viss.

Ég man bara eftir einu atriði. Þá var einhver stúlka í einhverskonar “Iron Maiden” vél sem saug úr henni blóðið og einhver vond kelling ætlaði að drekka það eða drakk það…? Mig minnir að hún hafi nærst á blóði sem var sogið úr fólki með svona vél allavega.

Ég hef spurt marga sérfræðinga - enginn veit hvað ég er að tala um. Enda ekki á miklu að byggja þar sem ég man mjög óljóst eftir einu atriði. Það þarf ekki einu sinni að vera að þetta sé bíómynd - gæti allt eins verið þáttur eða sjónvarpsmynd.

Vonandi man einhver eftir þessu.