Það var búið að benda mér á þetta áður, og það eru enn fleiri villur, t.d stendur “Goerge” á einum stað, sem á að sjálfsögðu að vera “George”, en ástæðan fyrir þessu er mjög einföld, rétti leiðrétti creditlistinn var ekki renderaður út í þessari útgáfu. Ég tók bara fyrstu skrá sem ég fann og steingleymdi að það var til nýrri “update” útgáfa, en svona er þetta, fólk verður bara að þola 4-5 villur. George lucas ætti samt að vera fúll, þar sem ég virðist ekki geta stafað nafnið hans rétt…