Jónahlið er prótín í himnum, einkum frumuhimnum, sem jónir flæða í gegnum; þetta hefur aftur áhrif á himnuspennu frumunnar, það er spennumun milli ytra og innra borðs hennar. Jónahlið eru ekki alltaf opin; sum jónahlið opnast frekar við tiltekna himnuspennu; önnur opnast eða lokast frekar ef tiltekið efni, svo sem taugaboðefni, binst hliðinu, o.s.frv. Jónahlið hleypa heldur ekki endilega öllum jónum í gegn; sum hlið hleypa til dæmis nær einungis katjónum, það er jónum með jákvæða rafhleðslu,...