hmmm… ég er sko ekki með msn. Geturðu ekki bara tekið plötuna frá þangað til að þú ert búinn að finna símann eða fá þér nýjan, svo ég geti hringt í þig. Væri best að geta gert það fyrir helgi þar sem að ég er með far fyrir hana úr R-vík (geri ráð fyrir því að þú sért á höfuðborgarsvæðinu) og þá verður hún bara sótt og borguð. Er hún nokkuð rispuð? Er albúmið (coverið) heilt?
iss. Mér finnst þetta ekki eiga að skipta neinu máli. Allavegana þegar ég spila að þá geri ég bæði (fer bara eftir því hvað verið er að spila í það og það skipti sko) svo nota ég líka stundum þumalinn á E og A strenginn til að gera bassalínur undir gripunum. En það er nú bara ég og mitt álit
já þeir í Rín sögðu mér að þeir hefðu verið með þennan gítar einhverntímann en virtust nú samt ekki vita mikið um hvað þeir voru að tala…. Samt, ef þið hugarar vitið um einhvern sem á svona til sölu þá væri meiriháttar að fá einhverjar fregnir af því Takk
Já addna hálvidinðinn :) Hringdu í mig, eða sendu mér sms og hringi í þig, eða gemmér ímeilið þitt eða eitthvað. Ef þetta er ME-6 “talvan” og í góðu lagi þá er ég til í 6000spírur. Kv Ottó P 8938330
Þetta merki þ.e.a.s ef þið eruð að meina "Stóran hring með ör beint niður, tvo litla hringi og tengingu á milli annars þeirra og stóra hringsins þá er þetta einfaldlega bara Riggs (teiknarinn) að kvitta fyrir sig. Það var á tímabili einhver annar sem teiknaði fyrir þá (veit ekki hver) og þar finniði ekki þetta merki/tákn.
Er fyrir norðan, ekkert mál reyndar að fá hann sendan til Ak (var að tala við þá) Ég var með Peavey Classic 50 4x10+1x15 sem ég seldi í vor þegar ég flutti tímabundið til Færeyja til að spila með Týr. Mig vantar bara eitthvað gott og veit ekkert hvað ég vill :/
Rétt fingra setning verður aldrei í lagi ef þú ert með þumalinn ofan á hálsinum og þá (eins og kemur fram) nær maður engum hraða. Venja sig á það strax að hafa þumalinn aftan á hálsinum og notast við einn putta á hvert band og færa svo annaðhvort vísi eða litlaputta eftir því sem við á. Annars eru til margar aðferðir, .essi hefur reynst mér best.
Þu getur í raun allveg ráðið því hvort þú notar aukastreinginn sem lægra “B” eða hærra “A” Flestir (ef ekki allir) notast við “B”-ið til að komast neðar, frekar en að hafa “A” til að komast ofar. Svo eru Universe gítararnir smíðaðir fyrir .09 sett þannig að auka “A” yrði þá .07 og þeir eru mjög gjarnir á að slitna (eðlilega) Þetta með litinn…. það er ekkert mál að málann uppá nýtt.
Adrian var í raun og veru aldrei “boðið” að vera með Dave ákvað það bara fyrir hann sem var auðvitað miklu betra þar sem hann (Smith) átti svo erfitt með að ákveða sig í þessu. Til gamans má geta að ástæðan fyrir því að Adrian fór að spila á gítar var Davey Murray, eir voru saman í skóla og Murray seldi Adrian gamla gítarinn sinn og þannig byrjaði það allt saman. Þeir stofnuðu skólarokksveitina Evil Ways Takkitakk kv
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..