Nú hef ég verið að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fara að venja mig af því að spila power grip með 1 og 4 putta og byrja aftur að spila það með 1 og 3 putta.
Ég man að ég byrjaði að nota 4 putta í stað 3 vegna þess að gítargaurinn í Cradle of Filth gerir það þannig en eftir að ég byrjaði að hlusta og spila mun meiri technical death þá sé ég að þeir nota yfirleitt 3 putta líklega vegna þess að þá er 4 putti laus og maður hefur meiri möguleika.
Ég er bara orðinn svo “góður” með að nota 4 putta, þá meina ég miklu hraðari og finnst það svo þægilegt.
Hvað segið þið?(:
Born to Raise Hell