Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kvöldið (3 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég skil ekki afhverju ég er að þessu helvíti. Ég opna dyrnar hljóðlega og geng inn. Vitleysingarnir læsa ekki einu sinni. Þetta er rólegt hverfi en það er alltaf betra að læsa. Þetta er fallegt hús, vel innrétt, hlýlegt, ljót gluggatjöld en ekkert hræðileg. Lyktin er fín, ég giska á að það hafi verið Lasagna í matinn í kvöld. Ég fer inní hjónaherbergið. Þau eru bæði sofandi, vona hálfpartinn að þau vakni. Mér finnst óþægilegt þegar að þau eru sofandi. Ég kveiki mér í rettu. Ohh hvað þetta er...

The Dragon (5 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Analúts konungur stökk á bak dreka sínum Talbíts. Úr andliti hans skein reiði, nei hatur. -Blóð mun renna í dag. Blóð óvina minna mun renna í stríðum straumum niður dal hefndarinnar. Þeir munu fá að sjá eftir því að hafa tekið frá mér það eina sem að ég hef nokkurn tíma elskað. Hár hans og skegg blakti í vindinum þegar Talbíts steypti sér yfir flokk manna sem að flýðu á harðahlaupum yfir gamlann stríðshrjáðann akur. Analúts rak upp öskur þegar að talbíts blés eldhafi inn í miðjann hópinn....

HEy babe (6 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég sá hana sitja við borðið í sjoppunni. Hún var að borða franskar og drekka kók. Ég settist við hliðina á henni. -Hey babe -Hey -Ertu að borða franskar -já -Ég væri alveg til í franskar -So -Face á mig babe Við þögðum í stutta stund. Ég horfði á hana og lét mig dreyma. Þetta var svona stelpa sem að strákur eins og ég gæti reynt við alla mína æfi en aldrey fengið. Ég verð að sætta mig við einhverja búttaða, jafnvel með gleraugu. Hún verður kannski skemmtileg en öllum er sama um það, hún...

Hvað? (5 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Sumir lifa af því að þeir þekkja ekkert annað, ég lifi af því að lífið þekkir ekkert annað. Ég er það sem lífið sjálft lítur á sem líf, sjáðu til lífið veit ekkert að þið séuð að lifa því, það er að berjast við að lifa mér. Flókið? Ég hef lengi varið mínum tíma í að hugsa um hvað ég geri, hvað ég er, hvað sé mitt líf. Ég veit það ekki, ég hef aldrey vitað það og ég mun aldrey vita það. Samt held ég áfram að leita, leita að tilgangi, merkingu, einhverju. Kannski ætti ég bara að hætta að...

Loksins (9 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki mjög góður í mannlegum samskiptum. Ég er betri í tölvuleikjum. Sérstaklega hetjuleikjum. Mér finnst svo gott að hverfa frá raunveruleikanumyfir í heima þar sem ég get verið myndarlegur prins sem fær allar stelpurnar eða Miles vinur Super Sonic, ég þykist aldrey vera Sonic sjálfur, það er of langt frá raunveruleikanum. En allavega er ég ekki alltof góður í mannlegum samskiptum. En í dag breyttist það allt. Ég eignaðist kærustu og marga vini. Í dag spurði Kata mig hvað klukkan væri....

Leitin að mér (5 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum
Það var einu sinni maður sem hét Grim. Grim var mikill hjólabretta maður og hans hugmynd um fullkominn dag var hann einn með brettinu sínu á mjúku sumarkvöldi. Kvöldin sem Grim kallaði mjúk voru kvöld þegar ekki var of heitt, ekki of kalt, enginn vindur og hæfilega mikið af skýjum sem að sólin litaðu svo yndislega rauð. Eitt sinn þegar Grim var sofandi vitraðist honum ungur drengur í draumi. -Grim, hvað ertu að pæla…þú átt ekki heima hér, þú verður aldrey alvöru skater hérna. Leitaðu að...

Heim (6 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum
Þetta er saga sem að ég er búinn að vera að vinna lengi að og ég held að hún sé tilbúinn.. -Hannes, hannes opnaðu augun… -hvað. -sérðu, við erum að hægja ferðina Hannes reisti sig við og skreið að brúninni á risastóra fluggítarnum sem hafði borið þá í háloftunum síðan þeir voru 4 ára. Fluggítarinn hafði séð þeim fyrir mat og vatni, haldið á þeim hita og skemmt þeim með tónlist í 8 ár. -Hvað er að gerast Hannes -Ég veit það ekki Dragon -heldurðu….heldurðu að gítarinn sé kannski að hleypa...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok