Nennti ekki að lesa þetta en ég held að ég skilji aðeins betur hvað þú meinar, eðlisfræðikennarinn minn sagði mér að ef að þú kemst nógu hratt þá stendur tíminn í stað eða hægist töluvert á honum. Reyndar var það sami maður sem að sagði mér að hugsa um hvort tími væri til. Mér finnst samt frekar undarlegt að hugsa til þess að tími sé í rauninni til og þá að svarthol hafi áhrif á tímann (Þar sem að útfrá mér séð þá efast ég einhvern veginn um að hann sé til, tel frekar að hann sé uppfinning)