Ástin er dásamleg, reynslan af henni er mikilvæg og auðveldara að höndla hana seinna meir. Erfitt er að vita hvort hinn einstaklingurinn elski mann líka, það kemur samt oftast í ljós seinna. Að afneita ástinni er synd. Love makes the world go round, round, round…
Hvaða aumingi ert þú? Þú ert augljóslega svo mikill nirfill að þú týmdir ekki túkalli í gervinögl handa mömmu þinni, 21. öldin er öld rómönsunnar, eiginlega, núna fyrst er fólk að borga fyrir kvensunar, í gamla daga var seld þér konu, þú fékkst feitan heimamund og allt í gúddí…
Útlit skiptir auðvitað máli þegar maður velur sér kærasta, líkamleg hrifning verður nú að vera smá en þetta sýnir bara að útlit er alls ekki allt. Maður getur átt alveg ófríða vini en samt tekur maður ekki eftir því (úps, kom svolítið illa út, en þetta er ekki illa meint :S)
Takk :D Já það er rétt, enda sækist ég í þannig stelpur, svona feimnar, kynbombur eru oftast bara of lauslátar. En svona feimnar stúlkur geta líka verið mjög grunnhyggnar, tala af eigin reynslu, ástin er harður leikur og oftast kemur maður verr útúr henni….
Vá, spara kannski ærumeiðingar, sumum er ekki hægt að breyta. Ég efast samt um að þú eigir eftir að vera ein lengi, þetta var bara smá athyglispóstur, svona eitthvað til að henda af sér reiðinni
Takk takk, punkturinn er einfaldlega að taka tíma til að kynnast, og fylgja hjartanu, maður lærir það með aldrinum….eða það held ég, ég er náttla bara unglingur…
Ég lenti í þessu um daginn, þetta er mjög svekkjandi. Ef þú ert mjög hrifinn þá ekki bíða og taka tíma, bara vera traustur og reyna að skjóta á þetta. Þá er höfnunin ekki næstum jafn sársaukafull.
Haha, það er alveg hægt að segja það en það gerir þap ekkert satt. Góðir gæjar eru tæknilega ekki séð, þetta eru bara þeir sem eru feimnir og skortir sjálfstraust til að gera eitthvað mikið í kvennamálum. Það mætti kalla “góðu gæjana” strákana sem eru vinir en vilja meira en þora ekki að segja neitt.
úff, veistu, það eru til svo margir sem stela nammi, drekka, reykja og eru í dópinu en þeir eru samt ekkert endilega vondir. En það er bara þannig að ekki allir eiga kærustu, sumir vilja það ekki, frekar þetta RB&B. Ríða búið og bless.
Þetta er alveg furðulegt hvað stelpur geta farið illa með mann. Sérstaklega þó að þær séu ekkert það “vinsælar” (ekki einsog það skipti máli en varðandi sjálfstraust þá er betra að vera í vinsæla hópnum en ekki). Það eru til svo margar stelpur sem eru illar á svo margan hátt en kvarta samt æ og tíð um hve illa þeim gengur að finna góðan gæja….er þetta ekki bara að þessar stelpur vilji flýja sannleikan að þær eru bara einfaldlega vondar?
Nei, alls ekki, þetta er bara svar við spurningunni hvar eru góðu gæjarnir? Það mætti segja að þetta væri svona “stereotypes”, þessir vondu eru ekkert endilega vondir en það gerist stundum, vondir strákar fá líka ekkert endilega nóg að ríða, þessir góðu geta líka alveg vaðað uppá hæl í “one night stands” en ég veit ekki….
Haha, má vera, en þær eiga það til að kvarta, svo að ég gef þeim næstum fullkomið svar. Ef þær geta ekki horfst í augu við staðreyndir þá veit ég ekki…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..