Hljómsveitina Enemy vantar trommara og söngvara, helst sem fyrst. Við erum staddir á Akureyri og erum að æfa í Húsinu, eða gamla kompaníinu. Við erum tveir gítarleikarar, á 17. og 18. ári, og einn bassaleikari á 17. árinu.

Við eigum þó nokkuð af frumsömdu efni, og ef við ættum að líkja okkur við einhverja hljómsveit þá væri það helst hin sívinsæla Metallica. Svona metall með slatta af gítarsólóum.

Getið bara haft samband við mig. Best væri að þið mynduð senda mér póst á krokodill87@hotmail.com eða jafnvel bara adda mér inná msn og tala við mig þar.