Seinustu greinar á þessu áhugamáli (rómantík) eru nánast allar búnir að fjalla um hversu strákar hafa lítið sjálfstraust og hvort það séu ekki einhverjir góðir strákar til enþá eða hvar leynast þeir. Ég ætla að koma með skoðanir og hugmyndir fyrir bæði kynin því mér sjálfum fynnst alveg einstaklega fáránleg sum svör við þessum greinum sem komið hafa fram og fólk virðist vera með svo misjafnar skoðanir á öllum þessum málum að ég tel að það vera komið að mér að tjá mig um þessi mál.

Sjálfstraust stráka:
Margar stelpur hafa kvartað að sjálfstraust hjá strákum er annað hvort off mikið eða off lítið, ég tel samt sem áður að fjöldi þeirra stelpa sem eru útí hinu daglega lífi séu geysilega margar sem eru svo feimnar sem þorra varla að tala við karlmann. Sumar hverjar eru ef til við hræddar við höfnun, aðrar bara ef til hræddar við þennan “evil peniss” kynþátt eins og var sagt í einhverjum þáttum (sem ég mann ekki eftir núna hvað heita en jæja).
En strákar sem eiga við þetta vandamál, ég persónulega var mjög mjög mjög lengi að þorra tala við stelpu og það þarf meira en að segja það að geta sest hliðná stelpu og bara spurt um nafn og farið að spjalla í róleg heitum og heilla hana uppúr skónum og getur tekið langan tíma, þá er þolinmæði og náttúrulega almenn kurteisi sem á við, bjóða stelpunni í bíó, leigja spólu “the finer thing” og um að gera kynnast “persónunni” betur og myndi sterk tengsl.
Að þorra að gera allt þetta er hugrekki og mikil mannlegt en eins og flestir eru flestir/allir strákar hræddir við höfnun eins og kvennfólkið bara við látum ekki mikið bera á því þó þið stelpurnar getið brotið okkur niður með að neita okkur, eða segja kannski leiðinlega setningu sem þið teljið að sé ekki svo slæmt en við eins og þið (stelpurnar) tökum margt smátt mjög til okkar AND YES WE HAVE FEELINGS!.

Good boys:
Góðir strákar eru til í stórum mæli í samfélaginu bara þið stelpurnar eruð gjörsamlega blindar að sjá þessa stráka vegna þeir hafa ekki þennan fríðleika, sólbekkjaáráttu, eða “vinsælleika” þá eru þeir ósýnilegir fyrir ykkur þetta er alveg einstaklega slakt og já ég er að nánast að alhæfa ykkur því ég er í menntaskóla og maður sér næstum aldrei venjulega stelpu horfa á venjulegan strák!, “the normal girls” horfa lostafullum augum á vinsælu strákana eftir kannski einu litlu brosi eða að þeir bara horfi á þær. Þetta er sannleikur með mjög margar stelpur og ná þær ekki fyren þær eru eldri að margir strákar hafa yndislegan persónuleika og sér maður þá loksins eitthvað ské hjá svona stelpum annars liggur við að manni grunar að þær eru kyndauðar eða “kynkaldar” líkt og margir hafa notað yfir svona stelpur.

Stelpur það er komin tími til að þið farið að hugsa með hausnum en ekki “Typpinu” eins og oft er sagt við okkur strákanna. Það er mjög ólíktlegt að þið munnið ná saman við þessa vinsællu stráka, þeir eru líkt og “vinsælu stelpurnar” að leita oftast að rbb (ríðabúiðbless) ekki nánu tilfinningalegu sambandi eins og margir.

Þetta á einnig við um marga stráka þó þeir skynji munn fyrr að þeir eiga ekki grænan sjens í vinsælu stelpurnar og gera sér grein fyrir að aldrei munni neitt verða þar á milli.

Þar sem mjög margir yngri notendur -14 eru oft að senda korka og ef til vill stuttar greinar þar sem ekkert kemur af viti nema sorg og reiði ætla ég að reyna koma með nokkur ráð líkt og vinkona okkar á huga HJARTA er búin að gera á kynlífinu en ég ætla að reyna koma með rómantíska ljúfa punkta fyrir bæði kynin, meigið gagnrýna eins þið viljið en meigið einnig nota þetta, og trust me this works like hell!

Punktar til að heilla kvennfólk:

1: Bíó ferðir, hafa alltaf verið taldnar yndislega “rómó” en strákar maður sér þetta oft þegar maður fer með félögunum í bíó á hasar myndir, pör saman og stelpan ekki að fýla hraðar byssumyndir.
Drengir stelpur vilja í 9 af 10 tilfellum fara á rólegar hugsanlega ástarmyndir eða “chill” myndir og ef svo heppilega vill til að stelpan fíllar svona myndir þá ertu virkilega heppin eða hún vill fara á myndina til að gleðja þig og gera þér til geðs!

2: Videó, þetta er eins og með bíó ferðirnar ekki hasarmynd. Hugsið bara á videoleiguna vill ég vera að faðma hana yfir rólegri mynd eða hafa hana spennta yfir hasarmynd. ( Mæli samt með hrollvekju :))

3: Gjafir, stelpur og ekki bara ein og ein stelpar
allar stelpur elska að fá gjafir. Það þarf ekkert að gera kannanir á því þær elska að fá blóm (rauðar rósir sterkar á hægri kantinum!), konfeikt er ekki jafn vinsælt því það er kannski einum off mikið beint úr bíómyndunum allaveganna hefur ekki komið upp en hjá mér eða neinum sem ég þekki að gefa stelpu súkkulaði?

4: Herramaður, ef þú vilt einhvern tíman eiga alvöru samband þarftu að vera herramaður, ekki bara við stelpuna heldur alltaf, bæði þá verða vinkonur hennar ánægðri með þig og allir í kringum þig og hún sjálf ber virðingu og lítur stærra á þig fyrir að vera mikilmenni :).


Stelpur :

1:Strákar eru ekki mikilir samræðumenn þó það kemur fyrir að margir tala mikið og náið við stelpur, ekki reyna að spyrja okkur um allt sem við gerum og hvað okkur langar alltaf að gera.
Við erum ekki jafn tengdir tilfinningum okkar og þið. Einnig erum við ekki í jafn góðri þjálfun að tala við vinni okkar eins og þið við vinkonur ykkar.

2:Bíó / Video: Ekki leyfa stráknum að velja, ef þú vilt fá nána stund saman og “quality moment” saman þá velur þú rólega mynd þar sem þið getið “bjargað ykkur ;=) ”

3:Hrós: Þetta er strákum mikilvægt, ykkur finnst þetta kannski furðulegt en þið eruð alltaf að hrósa vinkonum ykkar og þetta er svakalega uppbyggjandi fyrir bæði kyn og bara gott fyrir egóið. Og strákar sem lesa þetta þið viljið að ykkur sé hrósað ekki reyna að neita því!.

Jæja ég vona að eitthvað hafi komið af viti út úr mér þótt það gerist mjög sjaldan. Ég hef verið að aðstoða krakka og fólki í korkunum hérna á rómantík og fannst ég gjörsamlega verða blanda mér inní greinar einnig. Tók þessi grein 1klst slétta og voru hlustað á mörg lög á þeim tíma og drukkið 1L af pepsi max. Og já ég er karlmaður í sambandi og í menntaskóla.

Til að enda þetta ég hef tilfinningar ég er sterkur, ég er mestur, ég er bestur -> ég er karlmaðu