Mér finnst þetta góð líking hjá þér með spegilinn og endurspeglunina sem má skilja á tvenna vegu. Á svipaðan hátt tel ég að það megi til sanns vegar færa að sálin hafi verið sköpuð við getnað, og það megi einnig færa rök fyrir hinu gagnstæða, sbr. kenningin um “sálnaflakk”, þ.e. endurburðarkenninguna, að sálin endurfæðist hvað eftir annað í holdinu þar til sálin hefur náð takmarki sínu að renna saman við guðsandann. Ég hef skrifað um þessa kenningu á þessum vef sem ég hef heimfært upp á...