Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu gjörsamlega á hvolfi í húsinu..
Börnin hans 3 voru úti, ennþá í náttfötunum að leika sér í drullunni með neastisboxin tóm og umbúðapappír var stráð ut um alla lóðina…

Dyrnar voru opnar á bíl frúarinnar, sama sagan var með útidyrnar á húsinu..
Þegar hann kom inn í forstofuna blasti við honum enn meiri óreiða.

Lampi hafðu verið felldur um koll, gólfmottan var kuðluð við einn vegginn.
Í næsta herbergi var teiknimynd í TV og á hæsta styrk og leikföng af öllum stærðum og gerðum voru dreifð um allt herbergið.

Í eldhúsinu .. diskarnir flæddu út úr vaskinum.. morgunmaturinn var sullaður út um allt borð.. hundamatur út um allt gólf….
brotið glas var undir borðinu, smá sandhrúga var við bakdyrnar

Hann hraðaði sér upp stigann, troðandi á leikföngunum og fatahrúgum í leit að konu sinni.
Hann hafði áhyggjur af því hvort hún hefði orðið veik eða eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir.
Hann fann hana hangsandi inni í svefnherbergi, ennþá í krumpuðum náttfötunum að lesa smásögu.

Hún leit brosandi á hann og spurði hvernig dagurinn hefði verið.
Hann leit á hana ringlaðurog spurði, “Hvað skeði hér í dag?”

Hún leit aftur brosandi á hann og svaraði:
“Þú spyrð mig á hverjum degi þegar þú kemur úr vinnunni hvað ég hafi eiginlega verið að gera í allan dag?”
“Já” segir hann tortrygginn.
Hún svarart. “Jæja, í dag gerði ég ekkert!!!”