Ertu með lykilorðið hashað með md5 reikniritinu? Þegar þú ert að setja inní gagnagrunninn, með phpmyadmin þarftu að velja MD5 (vinstra megin við textaboxið sem þú skrifar lykilorðið í), ef þú ert að setja þetta inn með kóða sem þú skrifar ættiru nú að vita það, en það er MD5('pass') í staðinn fyrir ‘pass’…
Ég prófaði þetta ekkert :P Þetta er samt dæmi um hvernig þú gætir gert editor. Bara af því að þú kallaðir þetta tutorial, svo birtirðu bara 2 kóðabúta og sagðir að þetta væri tilbúið… Og líka af því að þú sagðir að þetta væri editor en til að nota kóðann sem þú gafst upp þyrftirðu að skrifa miklu lengri kóða til að búa til editorinn..
Með ‘leiðakerfi’ áttu þá við svona felli dæmi? Þannig að ég vel kannski tölvur, þá kemur fram vefsíðugerð og vélbúnaður, ef ég vel vefsíðugerð kemur fram php, asp, javascript, html og ef ég vel php get ég valið <= 4 og 5,* eða eitthvað í þá áttina?
Ég held að marquee taggið virki bara í IE… (minnir það). Það eru líka til fullt af einhverjum möguleikum með það (í hvaða átt textinn scrollar og hversu hratt og svona). Ég er samt á því að það eigi ekki að nota slíkt rugl svo ég segi bara javascript :P
Og já sry… Þetta sem er default fjólublátt er ‘heimsóttur linkur’ (visited). Þá geriru <body link="#FF0000" vlink="#OOFFOO">t.d. eða ('betri aðferðin :P') /* CSS stíll */ body a { color: red; } body a:visited { color: yellow; } /* það er betra að nota litakóða en litanöfn, en þetta virkar hjá 99,99999% netnotenda (sirka)... */ Minnir að þetta sé svona, óprófað svo ég tek enga ábyrgð…
Getur bætt einhverju rugli í body taggið… <body link="#00000">Eða eitthvað í þessa áttina (ég nota aldrei svona :P) Ég myndi frekar nota þetta, bætir bara í stílsíðuna eftirfarandi body a { color: /*litur, getur verið blue, yellow eða #*** eða #*** */; } Ef þú kannt ekki að nota CSS vil ég benda á grein sem ég skrifaði um daginn sem kennir grunnatriði í því ;)
Þetta er hreint ekki nógu gott… Eins og áður hefur komið fram uppfærir þetta ekkert. Og ef þú vilt kalla þetta að það sé uppfært þá væri, finnst mér, lágmark að skella líka inn kóðanum til að sækja innihaldið úr skránni. Þetta er ekkert góður kóði, en svona, eins og ég myndi frekar hafa þetta (gefið að fólk sem kemur hingað er ekki allt mjög gott í php)… <html> <head> <title>Búa til/breyta skjali</title> </head> <body> <?php if($_GET['do'] == 'save') { $texti = strip_tags($_POST['theText']);...
Já, :P enda hefur ekkert það rosalega mikið (sem maður er alltaf að fletta upp) bæst við. Flest eitthvað svona gamalt sem maður man ekki í augnablikinu. Vil samt minna á að íslensk málstöð hefur líka gefið út tölvuorðasafn sem er mjög þægilegt að nota til að fletta einhverju upp :)
Ég myndi prófa töflulausa vefsíðugerð ef ég væri þú (:) skemmtilegra til lengri tíma). Svo mæli ég líka með að kóða allt í höndunum (þ.e. með editplus eða notepad+ eða eitthvað). Þannig færðu meiri tilfinningu fyrir kóðanum og skilur betur hvað mætti betur far o.s.frv. ;)
Þú getur líka skellt inn tilbúnum scriptum með cpanel (er það ekki hjá go.is?)… En þetta er samt ekki öruggasti hýsingaraðilinn á landinu (hefði getað farið illa með síðu vinar hefði ég nennt…)
Þú ert með svolítið outdated orðabanka hérna :P Nýi orðabankinn er staðsettur á http://herdubreid.rhi.hi.is:1026/wordbank/search Hinn er gamall og hætt að vinna með hann held ég…
Já, ég veit. Ég notaði vaddjúsíisvaddjúgjed fyrst, enda var það það sem ég lærði á í skólanum (dw 4). En ég sé svo rosalega eftir því, þar sem ég sat fastur með slíkt forrit og trúði því virkilega að kóðinn sem það bjó til væri góður :s Þess vegna mæli ég með því að gera síðuna með html skrfuðu af þér því þá gengur bara mun betur að skipuleggja sig og gera síðuna flotta OG vel gerða. Góð bók fyrir byrjendur er ‘HTML á eigin spýtur’ sem hægt er að fá á næsta bókasafni.
T.d. http://www.easydomain4all.com það eru til milljón og tíu endursöluaðilar fyrir .com vefföng. Þú þarft líka að fá einhvern dns server (getur sett upp á tölvunni þinni sjálfur ef þú ætlar hvort eð er að hýsa þar) til að benda á síðuna þína. Prófaðu að lesa hvernig þetta allt virkar á ‘svör fyrir byrjendur’ (sjá link að neðan) eða http://www.howstuffworks.com ;)
Ég get kannski eitthvað hjálpað ykkur.. :) Nafn mitt er Halldór Ég spila ekki cod:uo (hættur öllu netleikjabraski) Já ég hef fyrri reynslu, ef þú vilt sjá dæmi þá sendu bara skilaboð.
Mig langaði sko bara geðveikt að koma því á framfæri (ef þú last ekki kóðann sko…). Þetta fall, whatever, notar file_get_contents(), eini munurinn á minni hugmynd og þeirri bak við þessa er að þetta sækir rss feedið og sleppir því öllu crapinu í venjulegu síðunni :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..