Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

halldor89
halldor89 Notandi frá fornöld 37 ára karlmaður
150 stig
“If it isn't documented, it doesn't exist”

Re: Brauðmolar

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú getur búið til smá svona kerfi fyrir það. Til dæmis geturðu búið til í mysql grunni töflu sem heitir pages (eða james_bond eða eitthvað, ekki spyrja mig :P). Þar hefur þrjá reiti; ID, pName og page (dæmi: 1, Forsíða, main.php) svo hefurðu bara svona kerfi þannig að allar síðurnar eru bara http://www.síða.e-d?id=1 og þá geturðu lesið $sql = "SELECT `pName` FROM `pages` WHERE `ID` = '{$_GET['id']}'"; Bara hugmynd ;)

Re: AJAX

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er nú búinn að lesa mér slatta til um þetta, bæði um hvernig þetta virkar og smá tutorial um hvernig þetta er gert. Það verður auðvitað að greina hvort vafrinn styðji við þetta og ákveða þannig hvort þú ætlir að senda AJAX form eða venjulegt form.

Re: Internet Explorer vs Mozilla Firefox

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég held að FireFox owni nú markaðinn hjá hugsandi tölvunotendum. Hins vegar eru enn fyrirtæki og stofnarnir (t.d. Verzló) sem eru AFAR hrifin af M$ og öllu því tengdu og hafa því aðeins Internet Xploder. Þess vegna er IX ennþá notaður. Góð sönnun á því er að þrátt fyrir að M$ hefðu gefið út svona öryggisviðbót þá er sífellt færra fólk sem notar IX og fleiri sem nota FF og jafnvel Opera (sem er þó ekki, því miður, stór aðili þarna).

Re: Mozilla

í Netið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þetta finnst mér kjánaleg ályktun. Þegar þú setur þetta upp minnir mig að þú getir valið um hvort þú viljir fá Opera bannerinn eða Yahoo auglýsingar. Ég held nú að það sé ekkert ‘adware’ þó að það sé auglýsing í vafranum, þetta er mjög þróaður vafri og þeir tóki þá ákvörðun að gefa vinnuna sína ekki alveg, en bjóða samt upp á útgáfu sem ekki þarf að greiða fyrir. Svo ef þú vilt vera alvöru kaupirðu bara vafrann, hann er ekki það dýr, og mér finnst hann vera þess virði :p

Re: Algjör auli í svonalöguðu :/:/:/

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það sem þú vilt er a.m.k. ekki celeron, þeir eru háværir og leiðinlegir. Ekki vera endilega að spá of mikið í klukkutíðnini (Mhz/Ghz) og veldu frekar góðan örgjörva. Það er alveg nóg fyrir þig að hafa 1 Ghz eða svo eins og kom fram hér áðan. Varðandi vinnsluminnið, þá verðuru að hafa í huga að ef þú ert að nota þessa tölvu í skóla þarftu annað hvort Windows XP Pro (notar ca. 256MB bara í stýrikerfi) eða Windows 2000 Pro (notar töluvert minna í stýrikerfið). Þú getur komist af með 256 MB með...

Re: Mozilla

í Netið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
wtf? hvernig færðu það út?

Re: Help.

í Netið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ertu með Hive? Þetta hefur heldur aldrei virkað hjá mér… Góð ráð, nota proxy eða stelast í unsecure wireless network hjá einhverjum lúða ;)

Re: Olympus m:robe vandræði

í Græjur fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Bræðurnir Ormsson eru að selja þetta. Þú gætir reynt að senda hann í viðgerð þangað, þó svo að það myndi væntanlega kosta einhverja peninga.

Re: Ip númer

í Tilveran fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég held að það þurfi einhvers konar dómsúrskurð sem skyldi símafyrirtækið sem úthlutaði ip tölunni sem þú vilt finna til að segja þér hver var með hana á þeim tímapunkti sem um ræðir. Annars er ég ekki alveg viss… En þetta eru a.m.k. ‘persónuupplýsingar’ svo að allt yrði brjálað ef það væri svona auðvelt að nálgast hver er á bak við ip tölur.

Re: láta fólk auglýsa sjálft...

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Æ, eða ekki.. Smá flóknara, en samt örugglega ekkert mál að gera.

Re: láta fólk auglýsa sjálft...

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ef heimasíðan þín styður php, asp, asp.net, jsp eða annað sambærilegt. Þá geturðu sett eitthvað þessu líkt upp á síðunni þinni. Þetta ‘forrit’ er ekkert flókið. Bara smá scripta í rauninni sem tekur við fyrirspurnum og vinnur með gögnin sem hún fær og vistar í gagnagrunn eða sækir í hann eftir þörfum (væntanlega). Þú getur prófað að tékka eitthvað á http://www.hotscripts.com annars þá fynnst mér þetta sem þú sýndir sem dæmi líta mjög líkt út og bara breytt gestabók. :p

Re: láta fólk auglýsa sjálft...

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Sko, þetta er svona lítið ‘forrit’ á vefnum sem leyfir fólki að senda vefþjóninum ‘fyrirspurn’ um að vista auglýsingu frá þeim í gagnagrunn. Síðan þegar enhver fer á þessa síðu til að skoða auglýsingarnar er hann að senda aðra ‘fyrirspurn’ til vefþjónsins um að ná í þessar auglýsingar úr grunninum og sýna þær.

Re: Reiknivél

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já, sendu kóðann hingað inn. Það er annars til fallið round() í php, en það er bara venjuleg námundun sem myndi líka skila 11 í þessu tilviki. Síðan er til annað fall, ceil() það námundar alltaf upp á við, svo að það ætti að virka. En þú gafst ekkert upp nógu miklar upplýsingar til að hægt væri að hjálpa þér eitthvað, maður veit ekki einu sinni hvernig þessi reiknivél er (php, vb, vb.net, c# eða eitthvað).

Re: Skrifaðu stafi

í Forritun fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Verið að reyna að breyta ímyndinni :p

Re: Rakningar (Recursions)

í Forritun fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Samkvæmt orðabanka Íslenskrar málstöðvar er recursion rakning eða sjálfkvaðning. Gott að nota þennan orðabanka :)

Re: Login Kerfi

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hann á við að það er betra að gera if( $passwd = 'eitthvað' || $passwd = 'eitthvaðannað') include 'rett.php';

Re: Hvort...Linux or Windows

í Linux fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég er mjög ósammála, fólk sem ætti að velja linux er fólk sem nennir að lenda í smávægilegum vandræðum. Fólk sem nennir og kann að lesa, ef það nær því samt ekki getur reynst óhjákvæmilegt að spyrja ráða.

Re: Dc en og aftur

í Netið fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ef þú fannst ekkert á google, þá þarftu að læra á google ;) Google for dummies

Re: "Born to be root"

í Linux fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Íslenskir graffarar mættu taka sér þennan stíl til fyrirmyndar ;)

Re: Hvort...Linux or Windows

í Linux fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég *held*, ekki viss, held að það séu mun fleiri forrit sem eru til fyrir linux. Reyndar þá er flest svona linux dót líka búið til fyrir windows en ekki öfugt svo ég veit ekki…

Re: Auglýsingar líkt og á Mbl.is, sem fylgja

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Úff… Vó… <div style="position: fixed;">Það sem á að vera 'fixed' (fylgja þér)</div> Virkar mun einfaldara…

Re: Fjarlægja HTML kóða úr streng

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Stundum er samt gaman að leyfa eitthvað (t.d. með því að nota BBcode), þá er hægt að nota preg_replace()… Þetta er reyndar eitthvað sem ég myndi segja að væri nokkuð flókið að gera frá grunni (þú getur samt fundið tilbúið bbcode eitthvað á netinu, google), þar sem preg_replace() notar regex (regular expressions (venjubundar tjáningar ;)))

Re: question

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hefðiru lesið póstinn minn vel hefðiru séð að ég tók fram að þú þyrftir að lesa um php og læra grunninn (það myndi gera lítið gagn fyrir mig að lesa eitthvað dæmi úr kjarneðlisfræði ef ég vildi læra hana). Ef þú kannt grunninn og hefur viljann þá er gott mál að lesa aðra kóða, en það er mín skoðun að það sé best að læra grunninn og æfa sig svo í að gera bara allt sem manni dettur í hug.

Re: Útbúa gestabók?

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Bara þessi basic hugmynd um gestabók… Býrð til síðu sem tjékkar á hvort búið sé að senda nýtt innlegg í gestabókina, ef það er ekki búið að því senda form til að skrifa nýtt innlegg til gestsins, annars vistum við innleggið (væntanlega í gagnagrunn, getur samt alveg notað flat-file ef þú vilt :p)… Svo geturðu haft annaðhvort aðra síðu til að skoða innleggin eða bætt innleggjunum við á síðuna ef einhver GET breyta er sett á eitthvað :p Svo er eitt sem ber að benda á… Alltaf að meðhöndla allt...

Re: Javascript vesen

í Vefsíðugerð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Java og JavaScript er ekki sami hluturinn (bara svo að þú vitir það). Gæti verið eitthvað að vafranum þínum… Hljómar þannig þar sem ég held að þetta virki hjá flestum…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok