Ég keypti mér m:robe MR100 5GB mp3 spilara um daginn úti á Andorra, og eftir brösulega tveggja mánaða notkun er hann bilaður.
Ég finn ekkert á netinu til að hjálpa mér, og þar sem hann er keyptur á Andorra get ég ekki skilað honum, þannig að öll hjálp væri vel þegin.
Það sem er að spilaranum er það að þegar ég kveiki á honum frýs hann í startinu, þ.e. þegar m:robe merkið kemur upp, og ég get ekki einusinni slökkt aftur á honum, heldur er hann frosinn þar til batteríið klárast. Ég er búinn að reyna reset takkann, en það gefur mér nákvæmlega sömu niðurstöður. Er einhver sem getur hjálpað mér?
For those about to rock I salute you!