Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

haflidason
haflidason Notandi frá fornöld 110 stig
Magnus Haflidason

Siðblinda tölvunördana (15 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Eftir að hafa fylgst með umræðunni í samfélaginu af aðgerðum lögreglunnar hvað varðar brot á höfunarrétti og ólöglega dreifingu efnis sem fellur undir höfunarrétt get ég ekki lengur orða bundist. Flestir hafa dowload-að einhverju efni sem fellur undir höfunarrétt. Það gerir það ekki löglegt. Þetta er þjófnaður og að halda öðru fram er bara barnaskapur. Að vera með barnalegan áróður eins og gerð bannera þar sem grín er gert að aðgerðum lögreglunnar og því gert í skóna að dópsalar og aðrir...

Heathen Cemistry - Ný plata Oasis (1 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Back to basics er ágætis lýsing á HC nýju plöstunni frá þeim Oasis félögum. Platan angar af Bítlunum, Stones og Stone Roses og þeirra besta verk síðan (What´s the story) Morning Glory kom og sló öll met 1995. Eftir að hafa hrist af sér ruglið sem fylgdi velgengni fysrtu áranna eru þeir komnir aftur endurnærðir og byrjaðir að einbeita sér meira af tónlistinni. Liam á 3 lög á plötunni og koma þau öll skemmtilega á óvart. Hann hefur greinilega vaxið sem tónlistarmaður og á eflaust eftir að færa...

Björn Bjarnason - verðandi sendiherra ? (3 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Eftir að hafa fylgst með Birni Bjarnasyni í nokkrar vikur í kosningabaráttunni er ég viss um að sjálfstæðismenn ná ekki aftur borginni. Björn er hreinlega ekki fær um að koma fram fyrir hönd listans eða ræða efnislega um eitt eða neitt. Ef lagðar eru fyrir hann spurningar sem honum líkar ekki segir hann að þær séu ekki byggðar á réttum forsendum eða þá að það sé ekki hægt að spyrja “Ef þú ætlar, verður, munt þú…o.s.f.v.” vegna þess að hann viti ekki hvernig hlutirnir verði á þeim og hinum...

Win XP - floppy disk vandræði (0 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er tildurlega nýbúinn að uppfæra í xp úr me og líkar bara þokkalega. Hinsvegar þarf ég núna að opna floppy disk sem vistað var á líklega í win2000. Þegar ég reyni að opna hann(og fleiri sem eru ekki úr XP) í drifinu koma villuboð eitthvað á þessa leið: “This floppy disk is not formatted, would you like to format now?..” Ég finn ekkert um þetta vandamál neinsstaðar og ef þið hafið einhverjar potþéttar lausnir á þessu þá þigg ég þær með glöðu geði. MH

Hver er tilgangurinn ? (5 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Oft að kvöldi til hef ég horft til himins og séð milljónir stjarna á himninum sem virðast svo nálægt okkur. Þá fer ég oft að láta hugann reika um lífið og tilveruna. Til að mynda hef ég oft velt því fyrir mér hvar ég myndi enda ef ég myndi fara á geimskipi eins langt og ég gæti. Þ.e.a.s. ég gef mér þá að ég væri ódauðlegur og ekkert stæði í vegi fyrir því að keyra “endalaust” áfram í geimnum. Myndi ég einhvern tíma koma að “enda”?, myndi ég á endanum fara hring?, hvað leynist þarna langt,...

USA eftir árás (0 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það efast enginn um hvað bandaríkjamenn hafa þurft að ganga í gegnum eftir hryðuvekin umtöluðu. Þessi árás er orðin sér kafli í sögunni og eflaust verður enn rætt um hann löngu eftir að ég verð kominn undir græna torfu. Bandaríska þjóðin breyttist og á eftir að breytast meira í kjölfar þessara voðaverka. Nú sem aldrei fyrr eru bandaríkjamenn sameinaðir, allir hjálpa til, allir lifa í sátt og samlyndi. Allt í einu gýs upp þessi svakalega þjóðerniskennd sem margir myndu segja að hefði nú verið...

Bandaríkin eftir árás (0 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Árásin á Bandaríkin var hræðileg og er ég ekki hérna til þess að draga úr því. Hinsvegar hef ég áhyggur af því hvernig Bandaríkin eigi eftir að verða eftir að allt þetta er gengið yfir. Það þarf ekki annað en að horfa á Jay Leno til þess að sjá starx miklar breytingar á hegðun og hugsun manna. “The tonight show with Jay Leno” var fyrir árásina topp þáttur þar sem miskunarlaust var gert grín af öllu er tengdist bandaríkjunum. Núna 2 vikum eftir árásina er hinsvegar annað uppá teningnum....
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok