Ég ætla nú að vera alveg sammála þér með kjörseðlana, þvílík ósvífni að leyfa manni ekki að klára lagið sitt. Og vitiði hvernig Óli Palli afsakaði þetta? “Æi, þið vitið nú hvernig þetta er, hver hljómsveit kemur bara með sitt lið sem gefur þeirri hljómsveit fullt hús en hinum ekkert”. Við unnum tilraunakvöldið sem við kepptum á á sal. Við þekktum ca. tíu manns þar… Ekki það að ég sé eitthvað bitur, það er ekki heimsendir þó maður fái ekki verðlaun í MT, sérstaklega þegar úrslitin eru svona...