Hin snaríslenska rokksveit Dead Sea Apple er á barmi þess að ljúka við sína þriðju breiðskífu sem mun heita í höfuðið á bandinu. Þeir félagar hófu upptökur í haust og hefur ekki farið mikið fyrir sveitinni í millitíðinni. Fyrsta lagið af þeirri plötu byrjar að hljóma á öldum ljósvakans í dag, en það heitir Your Legacy. Í kjölfarið af útgáfu plötunnar mun Dead Sea Apple halda veglega útgáfutónleika í maí ásamt drengjunum efnilegu í Pan. Staður og stund kemur í ljós síðar. Ég vil benda á að hægt er að nálgast lögin Water og Paperwork & Painkillers á rokk.is…