Ég veit ekki hvort þetta á eftir að standast hinar háu kröfur sem gerðar eru til greina til að þær geti talist GREINAR, en ég ætla að vona það, svo sem flestir sjái þetta.

Það sem ég er að velta fyrir mér hvort ÞIÐ eða einhver sem þið þekkið séuð að dunda ykkur við að semja eigin tónlist, og þá er ég ekki að meina harða rokktónlist, ég veit það er nóg af því. En ef svo er, látið mig endilega vita, því ég er með litla stuttmynd í kollinum, sem ég og vinur erum kannski að fara að láta verða að veruleika… og það sem myndi fullkomna myndina væri flott frumsamin tónlist.

En allavegana, sendið mér endilega skilaboð ef þið lumið á einhverjum óuppgötvuðum gullmolum!
ég er bara ég. þú ert bara þú. hver er orginal?