Fyrsta tölvan mín var Amstrad 512, fékk hana þegar gefins ég var tíu ára, og hún var þá eldgömul helvítis drusla og fimm tommu 512 KB harði diskurinn hljómaði eins og fallbyssa. Þegar ég stækkaði eignaðist ég MacLC (Hún dó á föstudaginn, RIP). Snilldar vél og gat gert nærstum allt. Svo keypti ég PlayStation, en það er varla við hæfi að hafa hana hérna… Núna þarf svo fátæklinurinn ég að endurnýa pésann sinn, núna á ég Trust, P-MMX 233 Mhz, 16Mb ram, 3GB HD.