Ísland er merkasta land í heimi.

Ísland og íslenska þjóðin hefur höfuð og herðar yfir allar aðrar þjóðir.

Við erum sterkust á öllum sviðum íþrótta og rótburstuðum frakka til dæmis tvisvar sinnum á stuttum tíma, fyrst 1 - 1 og svo með 3 -2 tapi.

Við höfum átt flesta Nóbelsverðlaunahafa á höfðatölu

Við vorum þjóðin sem kom af stað kvenréttindabarráttunni og er það ekki það eina sem við höfum gert fyrir lýðræðið. Síður en svo. Það var Ísland sem kom af stað Frönsku byltingunni.

Og ekki má gleyma því að það er okkur að þakka eystrasaltsríkin séu sjálfstæð.

Ekki nóg með það heldur tókst okkur það sem nánast engum hefur nokkurn tíma tekist áður en það var að vinna Breta í stríði. Þar sem við tókum þá í aðra nösina.

Og það vorum við sem fundum Ameríku, fyriheitnalandsins. Og eins og einhver snillingur mælti: Íslendingar hljóta að vera gáfuðustu menn í heimi, þeir fundu Ameríku og sögðu ekki nokkrum manni frá því."

Þegar þið lesið þessa grein þá áttið þið ykkur á því að Ísland er stærsta besta og mesta ríki heims.

Að eilífu
Ísland













P.S. Ég ætla að skrifa það hérna neðst bara svona til að þið vitið það þá er þetta kaldhæðni í mér. Svo að ég þurfi ekki að leiðrétta það eftir á!