Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gomamiso
gomamiso Notandi frá fornöld 38 ára kvenmaður
808 stig Sambandsstaða: Á lausu
Hefur áhuga á: Körlum
Vatn er gott

Re: Spoiler!!!! 6.bókinn held ég Spoiler!!!!

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
haha, það vantaði ekki :oP

Re: voldemort pabbi harrys?

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ekki séns að svo sé…ef það kemur í ljós þá hætti ég að lesa bækurnar. Alltof ASNALEGT! :oS Get ekki að því gert, rosalega Star Wars dæmi eitthvað ef það verður, eins og einhver benti á hér fyrir ofan(þ.e.a.s. ef Harry er tengdur Voldemort á EINHVERN hátt) Ég er fyllilega sátt við þá hugsun að Voldemort er einn á báti og er bara vondur og Harry er sá sem stendur í vegi hans. Engin blóðbönd Svo má náttúrulega allt hitt fléttast inn í :o) Gaman að benda á þetta ;o)

Re: Spoiler! Um kynblendingsprinsinum

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ef þetta er einhver sem við þekkju ætli að það tengist Evans fjölskyldunni eitthvað? Átti ekki eitthvað rosalegt að komast upp í kringum hana :o)? Æ, ég veit það ekki, kannski er þetta bara einhver eins og Finnigan eða bróðir Neville eða eitthvað svoleiðis…týndur blóðbróðir Harry's…vá hvað maður getur týnt sér í þessu :oS

Re: 6. bókin

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
ohh, ég vildi óska að bækurnar væru alltaf lengri og lengri :oP meira að lesa og meira í næstu bók…biðin væri samt alveg óbærileg :oS 6.bókin verður allavega styttri en sú fimmta.

Re: Prófa Crits!

í Myndasögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
tja, ég held að það hafi verið að meina að ýta á myndirnar eða eitthvað þannig og segja álit sitt við hverja mynd fyrir sig :oS en annars veit ég ekki. Þetta er flott mynd samt ;o) hló þegar ég sá svipinn. Hef ekkert þannig séð að setja út á hana, hún er neeett :o)

Re: Crits

í Myndasögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
haha, einmitt það sem ég ætlaði að stinga upp á ;o) það væri tærsnilld, skemmtilegt ef fólk bendir á galla og annað. Þá gerir maður endurbættari og betri næst…

Re: Harry vs hann-sem-ma-ekki-nefna

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
hahaha, ji það væri mesta aðhlátursefni á mörgum stöðum :D Nei Harry er örugglega ekkert mikið sterkari en Voldemort en ef maður pælir í því þá virðist hann vera, af frásögnum, mjög aumingjalegur maður líkamlega….veit ekki af hverju :o/ (Þar sem hann tók óvenjulega kipp í uppvexti sínum þá held ég að hann sé ekkert frásögum færandi hvað líkamann varðar…en nú er mér farið að verða dálítið flökurt af þessu umræðuefni svo ég held ég hætti bara.) :o)

Re: Myndir úr myndunum ;o)

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
úps :o/ Hér!! eru kápurnar og Hér eru myndirnar úr myndinni :o) aaaafsakið

Re: Ef þú mættir velja leikstjóra...

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Svooo sammála þér að það hefði mátt bíða með að Rowling kláraði bækurnar… Þetta er jafn heimskulegt og að gera mynd eftir Lord of the Rings áður en allar bækurnar kæmu út..Helmingurinn af öllum atriðunum sem myndi skipta máli væri sleppt því það var ekki talið nógu merkilegt, svo verður maður að bíta í súra eplið þegar hinar bækurnar koma. Svo ég kvarti aðeins meir þá skemma myndirnar líka mjög fyrir. Ef Rowling segir að henni líkar myndirnar, þá er hún að segja að í þeim er að finna hin og...

Re: Harry vs hann-sem-ma-ekki-nefna

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
..verð að spá smá. Það verða líklega engir galdrar við lýði þegar þeir berjast líklega :/ Meina, hann-sem-ekki-má-nefna er mesti aumingi sem ég veit um í bókunum (líkamlega), og ég held að Harry eigi eftir að lúskra á honum. en það er náttúrulega ekki góð fyrirmynd fyrir börnin að beita ofbeldi, en þar sem bækurnar eru eiginlega hættar að vera barnabækur held ég að það ætti ekki að bíttu neinu máli. :/ Svona smá ágiskun.

Re: Kápurnar

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Er eiginlega sammála, þær íslenskur eru sko EKKI neitt til að hrópa húrra fyrir. Þær Breskur eru samt alveg GEÐVEIKAR! enda keypti ég 4 bókina á ensku sem er Massa flott. Annars man ég eftir því þegar að það átti að gera kápur á HP-keppni. Mér datt í hug að gera Kápu á fönixregluna; Sem sagt þá væri annaðhvort mynd af einu auga á Harry (eða tveimur) yfir alla kápuna eiginlega . svo í gleraugunum hans myndi Fönixinn endurspeglast á flugi eða eitthvað… náttúrulega allt óumdeilanlega flott gert...

Re: Spoiler!!7.bókinn Spoiler!!!!

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Vá, manni fer bara að hlakka til bókarinnar…en einnig að kvíða fyrir þar sem þetta er sú seinast í röðinni og nr. 6 er á leiðinni… Úff, stundum óskar maður þess að hægt sé að galdra. Þetta í sambandi við Lily Potter finnst mér samt alltaf jafnmerkilegt. Hvað í sambandi við hana kemur eiginlega í ljós? Var hún kannski einhverntíma drápari? (efast stórlega um það) Eða dó hún á einhvern hrikalegan hátt?.. Kemur allt í ljós :/

Re: Spurning

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það er nú dálítið erfitt að segja til um það… Fer eiginlega eftir orðaforðanum sem þú hefur. En ertu þá að meina ALLAR bækurnar? Þú ættir alveg að geta hraflað þig áfram í þeim og bjarga þér þannig. Þetta er ekkert alveg rosaleg enska. Ég er sjálf ekkert það góð í ensku en ég skyldi alveg slatta í því sem ég las. Sakar ekki bara að prufa, það er nú lítið annað hægt að gera :)

Re: Könnunin....

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
jebb, sammála..

Re: Könnunin....

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Tja, ég myndi frekar vilja hafa “já, af Harry Potter” og “já, af öðrum bókum” eða bæði…. ..þ.e.a.s. aðeins nákvæmara.. Gaman að sjá hverjir vilja framhaldsbækur af Harry eða bara fleirri bækur sem hún skrifar. :)

Re: Vissuð þið?

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jah, nokkuð gaman að þessu :) Hrós fyrir það að hafa þýtt þetta allt :O jeddúddamía! en allavega, mjöööög gaman að lesa þetta.

Re: Smá pæling

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég ætla nú samt að svara þér ;) Ég held að það sé útaf því að hann er í galdramálaráðuneytinu. Ef ég man rétt þá held ég að McGonagall(jesús ég er farin að gleyma því hvað hún heitir :S) hafi skrifað fullt að allskonar bréfum tilráðuneytisins til þess aðfá þetta samþykkt… Og eins “löghlýðinn” maður og Dumbledore er (hann er það nú, hann beygir lögin smá ;) )þá held ég að hann hafi ekki viljað stela tímabreytinum frá staðnum. En annars þá eru þetta samt allt getgátur.

Re: Veit ekki alveg....

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jájá, mér finnst þetta alveg allt í lagi svona, en bara hugmynd um nýjan stað því korkarnir voru einu sinni mun ofar áður en Trivian og allt hitt kom :)

Re: Veit ekki alveg....

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
jamm, sko: Þegar þú ýtir t.d. á einhvern link sem þú hefur leitað að á google þá verður hann fjólublár ef þú sérð hann aftur. Talvan er að segja þér að þú sért búinn að skoða þetta. Eins með það að ýta á korka-linkana (t.d. þessi “Veit ekki alveg…”) á huga nema að það sést ekki að þú hafir ýtt á hann, allavega ekki í Harry Potter áhugamálinu :/…skiluru? :)

Re: MAMMA HANS MALFOY!!!

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
vá, minnir mann rosalega á Mortisha (kann ekki að skrifa það) í The Adam's family…

Re: smá kvart ;)

í Myndasögur fyrir 21 árum, 3 mánuðum
…góð ástæða fyrir því að teiknamyndapersónur eru bara með fjóra putta oft á tíðum ;) Annars skil ég það ekki :/, ég á ekkert sérlega erfitt með það, teiknaði oft hendina á mér að ganni, kannski það hjálpi þér eitthvað ;) Svo er náttlega gott að skoða Anatomyuna aðeins til að átta sig á hvernig fingurnir beygjast og svona. Bara að prufa sig áfram.. :)

Re: snape prófesor einu sinni dra´pari eða ávalt drápari?

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég held að Snape sé bara að leika (allavega að einhverjum hluta) eins og þegar Dumbledore lék á móti Harry og var ekki nálægt honum til þess að Voldemort grunaði ekki að þeir voru eitthvað nánir (sem myndi leiða til þess að Dumbledore kæmi upp um áætlanir sínar). Snape er augljóslega að leika á VOldemort líka til þess að plata hann, þess vegna hlýtur hann að vera í góða liðinu. Annars væri honum ekki treyst fyrir öllum sendiförunum sem Dumbledore hefur verið að senda hann í. …Allavega þá...

Re: Hversu mikill HP brjálæingur ertu? Krossapróf

í Harry Potter fyrir 21 árum, 3 mánuðum
49% obsessed with Harry Potter Vonandi fer ég ekki hærra :D Fínt að hafa Harry Potter öðrumegin í lífinu og allt hitt hinumegin ;)

Re: Mynd eftir mig..:)

í Myndasögur fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Góð mynd ;) Eins og margir eru búnir að segja þá er hún með stuttar lappir. Smá ráð: Yfirleitt eru teiknimyndapersónur alveg úr hlutföllum við raunveruleikan eins og þú veist :), lappirnar eru til dæmis stærri en í raun. Prófaður að miða með hausnum á fígúrunni sem þú gerir, t.d. 2 hausar: búkur, 3 hausar: lappir. Ég veit ekki hvernig Manga fígúrur eru byggðar upp en þessi leið hefur nýst mér alveg. Annars er bara að redda sér bókum um þetta, eins og Ingi benti á Nexus, margt sem finnst þar :)

Re: Næsta draw club

í Myndasögur fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Styð sko innilega að gera nýja dýrategund! Það reynir allavega nokkuð mikið á sköpunargleðina…reyndar eins og allt annað :/
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok