Englendingar leggja oft mikla áherslu að sækja upp kantana og skora úr fyrirgjöfum og hornum þannig að spila Owen og Scholes dregur úr styrkleika þeirra vegna hæðarinnar. Hinsvegar með tilkomu Heskey í þessa nýju stöðu þá kom Ericsson á meira jafnvægi og nýtti bæði leikni, hraða og hæð í sóknina. Niðurstaða leiksins hlýtur að vera sú að það er nóg af góðum talent með mikla breidd í Englandi í dag, það sem hefur vantað hingað til er almennilegur þjálfari með ákveðið hugmyndaflug.