Myndi frekar nota orðið “einhæft” - myndi þá hljómsveitin ekki gera nein fiðlulaus lög? Vissulega er örugglega kúl að hafa fiðlu í fáeinum lögum en fiðluleikarinn þarf ekki að vera meðlimur í bandinu.
Haha nei, steingleymdi að Superstar hefði verið sýnt nýlega. Held að það hafi verið sirka '95 sem Borgarleikhúsið setti Súperstar upp og þá var Stebbi Hilmars Júdas og einhver algjör snillingur Jesús - þessi gæi er með sítt hár og í hljómsveitinni Buff.
Jæja, þetta er sosum ágætt - ég hef lent á einverju slæmu með honum, hann að covera Killing in the name of og Seven nation army, auk þess sem ég hlustaði á einhverja acoustic útgáfu af Black Hole Sun sem mér þótt bara ljót.
Já, takk fyrir það (Y) Þegar ég var að mixa hverja rás fyrir lét ég reverb á sönginn en svo lét ég master reverb á allt klabbið og það hefur kannski verið fullstór skammtur fyrir sönginn ofan á reverbið sem áður var komið. Þú skilur .. Annars var allan tímann vesen með sönginn að hann var tekinn upp of lágt, en ég náði svona að bjarga því fyrir horn með því að hækka volumeið á rásinni í botn (inní forritinu) og EQa smávegis.
Haha, það er helvíti gaman að þessu Vatnsmelónudóti :) En þegar þú segir að eitthvað sé framarlega eða aftarlega í mixinu - áttu ekki örugglega bara við að það sé hátt stillt volume-ið?
Það leið rúmur mánuður þar sem hann gaf bara frá sér lágvært suð en svo einn daginn svínvirkaði hann. Ég hef hvorki hugmynd um af hverju hann bilaði né af hverju hann virkaði aftur, en mér er sosum sama á meðan hann er í lagi ..
Njaaa, eftir nanari umhugsun aetla eg ekki ad skipta neinu af upptokustuffinu minu, frekar borga bara med beinhordum peningum. Eg hef samband vid tig tegar eg eignast ta :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..