Reyndi alveg við MR og komst alveg í MR - en fokkaman (!) hvað ég er pirraður samt, lægsta meðaleinkunnin í MR var 8,7 og góður vinur minn var með 8,6 og komst ekki. Þetta er allt fokkans ósamræmdum prófum að kenna, af hverju? Vegna þess að það er ekkert samræmi á milli skóla, 9 úr skóla A er ekkert það sama og 9 úr skóla B - prófin eru miserfið og svo eru kennarar mis örlátir kennaraeinkunnir (geðþóttastuðull kennara) eftir skólum. Arg! (þið hljótið að sjá hvað ég er reiður)