Ég dýrkaði Muse, sko - alvöru dýrkaði! Fannst (og finnst líklega ennþá) Showbiz, Hullabaloo, Origin of Symmetry og Absolution allt vera snilldarverk, auk þess sem ég hlustaði mikið á b-sides lögin þeirra. Stíllinn tók miklu breytingum á Black Holes and Revelations, breytingum sem voru mér ekki að skapi, en engu að síður leyndust að sjálfsögðu gullmolar þarna inn á milli. Ég vissi hálfpartinn að nýi diskurinn myndi valda mér vonbrigðum og ég þurfti ekki að hlusta lengi á Uprising til þess að...