Uh, ég held sko. Allavega að ef þetta er góð vinkona þín, þá myndi ég halda að hún myndi bara vilja að þú værir ánægð. Fór út sem skiptinemi í heilt ár, og á meðan byrjuðu besta vinkona mín og fyrrverandi kærastinn minn (sem ég var þá ennþá frekar hrifin af) að dúlla sér, og vera að dandalast. Og ég sagði henni bara “Go for it!” - ég var ekkert að fara að hætta að vera vinkona hennar fyrir vikið, alltof góð vinkona mín svo að maður láti einhvern strák koma upp á milli sín.