Okey þetta er svona smá nöldur ^^
en þannig er það að ég hætti með þessum gaur í febrúar eftir 9 mánaða samband. erum mjög góðir vinir núna.
En þá er það akkúrat það að besta vinkonan mín er brjálæðislega hrifin af honum, og hún hefur verið að segja að henni finnst óþægilegt hvað hann er mikið með mér (s.s frekar afbrýðissöm myndi ég segja).. en meina ég og minn fyrverandi erum bara rosagóðir vinir og það er eins og hún fatti það ekki..

en hvað um það, en mér finnst persónulega rangt af bestuvinkonu mans að vera hrifin af fyrverandi kærasta mans, það er mitt álit. ég veit eins og ég myndi ekki leyfa mér að verða hrifin af fyrverandi bestu vinkonu minnar.

en hún er ekki að fatta það…

Hvað finnst ykkur um svona? (: