Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

frikadella
frikadella Notandi síðan fyrir 19 árum, 8 mánuðum 104 stig
Ai, no mames!

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Tja, ég ræð nú alveg hvort ég taki meira mark á einhverjum lélegum rökum hjá kellingu sem er forstöðumaður orðabókar eða kennara. Mundu að hún er að tala um þróun, sem ég er EKKERT að segja að sé rangt. Það breytir því ekki, að þótt að orðið muni líklega vera talið rétt í framtíðinni, þá er það ekki rétt núna í nútíðinni. Grow up? Ég tel mig nú þroskaðari en þig í gegnum okkar persónulegu samskipti.

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nei, ég tek ekki meira mark á þér eftir að þú segjir það. Mér finnst þetta ekki góð rök hjá kellingunni, mér finnst þetta heldur ekki góð rök hjá þér. Allt gott og blessað um þessa þróun, en þú veist ekkert frekar en ég um hve langt þessi þróun er komin. Ég hinsvegar mun ekki viðurkenna að talva sé rétt og góð íslenska fyrr en ég verði á spjalli við mann sem kann mikið fyrir sér í íslensku (kannske bara eins og kennarann minn) og mun segja “Nei, það er rangt að tölva, það er talva”. Ég hef...

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Heyrðu kallinn, helduru að ég viti það ekki? Þú verður líka að hugsa útí það að vísindavefurinn hefur ekki alveg rétt fyrir sér. Fyrir ári þegar við vorum að búa til vetnisskip fengum við það frá vísindavefnum að vetni væri tvöfalt dýrara, en það myndi líka endast tvöfalt betur en bensín. Við hringdum svo seinna í kallinn sem sér um vetnisstrætóana og hann sagði okkur að þetta væri bara kolvitlaust. Mér hefur verið kennt, síðan ég var í bleyju að orðið talva sé rangt. Ég er ekki að fara að...

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Guð minn góður. Einn nemandinn reifst við kennarann okkar hvort talva væri rétt eða ekki, og ég get alveg sagt þér að kennarinn “vann” það rifrildi. Hvernig geturu sagt að þróunin sé langt komin? Þekkir þú hvern einasta íslending, talað við hann? Ég heyri svo sjaldan að orðið talva sé notað, það getur vel verið að þú heyrir þetta oft, en þótt að þú sért að heyra þetta oft þá gerir það ekki að þróunin sé komin langt. Þín persónuleg samskipti segja ekkert til um hvort talva sé ríkjandi yfir...

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Og færi ég í stafsetningarpróf og myndi skrifa “Talva” þá fengi ég rangt fyrir það. Segjir það þér að þróunin sé búin?

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Einu sinni enn. Eðlileg þróun segjir ekki að þetta sé rétt. Eðlileg þróun segjir að þetta sé að þróast, og gæti einn daginn orðið rétt.

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Komst ekki hjá því.

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Tja, ég hef nú ekki séð það í kennslustundum að þessi þróun sé búin, eða í orðabók. Svo lengi sem fólki er kennt að rétt íslenska sé “Tölva” er þróunin ekki búin, myndi ég halda.

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þetta er bara rangt, sama hvort þetta sé eðlileg þróun eða ekki. Þetta gæti þróast í að verða rétt, en það gerir þetta ekki rétt í dag.

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það getur vel verið að það sé tenging á milli, en það breytir því ekki að orðið “Karfa” er rétt og orðið “Talva” er rangt. Eðlileg þróun? Jájá, ég ætla ekki að þræta fyrir það. En mundu að þetta er þróun, og mun kannske í seinni tíð verða rétt en það gerir þetta ekki rétt núna.

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Fyrirgefðu, en er þetta ekki -va og -fa? Nema að þú farir í “Körvubolta”. Þá gætiru alveg eins tekið orð eins og skafa, hafa o.s.fv.

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Eina staðhæfingin sem ég sá var að ég sagði ekki “Mér finnst þetta ljótt”, en það er kannske einum of mikið? Ég veit líka alveg að ég tala ekki alveg rétta íslensku, enda léleg í henni. En ég tek því vel þegar ég er leiðrétt og reyni að læra, frekar en að þræta fyrir það.

Re: Hvað gerði ég rangt?

í Rómantík fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Vó, sama hér! Æj, þetta er frekar óþægilegt :/

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Getur vel verið að þetta sé eðlileg þróun, en þetta er ekki rétt. Þetta er líka ljótt. Þótt þetta muni kannske verða að lokum að réttri og góðri íslensku, þá er það ekki núna. Kannske einbeita okkur að nútíðinni og tala núverandi íslensku?

Re: Talva - virkilega það vitlaust?

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Talva og Karfa? Ég gæti alveg eins sagt að “líkur” og “ríður” séu lík orð. Það væri hægt að segja þetta um öll orð sem væru með jafn marga stafi í og alveg eins sérhljóð. Hvað ertu að reyna að sanna með þessu? Tölva.

Re: Kemst ekki suður!

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hehe, ókei. :)

Re: Hvað gerði ég rangt?

í Rómantík fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ótrúlega leiðinegt þegar svona gerist. En vittu til, þú munnt kynnast einhverju betra :) Ég t.d. kvíði ótrúlega fyrir því að kærastinn minn hætti með mér, örugglega einhver paranojja í mér, en ég fer alltaf með þá tilfinningu í svefninn að hann hafi ekki nógann áhuga á mér, versta er að ég er alveg yfir mig hrifin af honum. Jæja, getur varla verið að þessi tilfinning muni endast. :)

Re: Konudagurinn

í Rómantík fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Takk, sömuleiðis!

Re: Ein Spurning :)

í Rokk fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Like I said, ekki beint geisladiskar. (Afsakið, tek illa gagngrýni í dag)

Re: Goth

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Vertu nú bara góður lítill strákur og uss nú. :)

Re: Goth

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þröngsýnt fólk á frekar ekki skilið að lifa. Annars eiga bara allir vel skilið að lifa, þú ræður engu um það kallinn minn. Ekki ert þú einhver “Guð” sem ræður hverjir eiga hvað skilið? Efa það, því þá ætla ég að verða trúlaus.

Re: Goth

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég er reyndar ekki goth, en mér finnst þetta jafn fáranleg spurning og að spyrja “Afhverju klæðiru þig hnakkalega?” Má fólk nú bara ekki klæða sig eins og það vill án þess að einhverjir aðrir fari eitthvað að kyppa sér upp við það?

Re: Veikindi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég reyni mitt besta. :)

Re: Veikindi

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Mátt ekki gleyma að þú missir af fiðlaranum á þakinu!

Re: Tölva / Talva

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég er búin að vera að heyra þetta allavega síðan ég var tólf ára. Og við vorum meira að segja látin skrifa smávegis ritgerð um þetta í íslensku. En tja, þú ert auðvitað hinum meginn á landinu, ég heyri örugglega allt aðrar fréttir en þú. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok