Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

frikadella
frikadella Notandi síðan fyrir 19 árum, 8 mánuðum 104 stig
Ai, no mames!

Re: Tölva / Talva

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þú getur ekkert frekar sagt til um það en ég hvert þróunin mun fara með þetta. En það er þó talið víst um að íslenskan mun hverfa og enskan muni koma í staðin. En jæja, hvaða slanguryrði voru fyrir lýði fyrir 50-70 árum og eru ekki til í dag?

Re: Tölva / Talva

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Tja, það er nú jú það sem ég er að læra í íslensku að með áframhaldandi þróun muni íslenska þróast útí ensku. Slanguryrði er t.d. góður punktur.. Og er ekki sjitt orðið viðurkennd íslenska? Það er verið að kenna íslensku í skólum til þess að málið fallist ekki í gleymsku (auðvitað með margra ára þróun karlinn, ég er ekki að tala um að málið verði að ensku einn, tveir og kabúmm) og það að við munum skrifa og tala rétta íslensku.

Re: Tölva / Talva

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er rétt, við skulum bara halda þessari þróun sem mun leiða til ensku. Bætt við 15. febrúar 2007 - 21:04 Svo ég bæti við. Ef við myndum enn tala forn-íslensku, þá væri það ekki slæmt. Ekki fyrir okkur því við myndum ekki þekkja neitt annað, og þá gæti ég líka skilið bækurnar sem við erum að lesa í íslensku fullkomlega.

Re: Tölva / Talva

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Jájá, en þá finnst mér nú tungumálið vera að förlast frekar en eitthvað annað.

Re: Tölva / Talva

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Guð hvað ég er sammála þér, ég þarf alltaf að bíta tunguna á sjálfri mér þegar ég heyri einhvern annan segja “talva”, mér finnst það bara svo ljótt. Góð grein. :)

Re: Tölva / Talva

í Tungumál fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Eðlileg þróun? Þú um það. En það er samt ljótt að segja talva.

Re: Er Þetta Rétt ? :/

í Heilsa fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Margt af þessu er rétta, en þú átt ekki að taka hvert ráð bókstaflega.

Re: Graff

í Myndlist fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ah, ég bjó þarna eitt sumar. Gaman að því!

Re: Arshatidarkjoll!

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Já, djammlegan! Þá er warehouse kannske ekki rétti staðurinn. :) HEfuru prófað motor(moto, what ever), eða flash?

Re: Arshatidarkjoll!

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Prófaðu warehouse í kringlunni, ég keypti mér þar allavega einn svakalega flottan. Finnst mér. :)

Re: Vængir

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég á rosalega vængi. Þeir eru reyndar litlir, bleikir og píkulegir. So, no help here I guess. :) Svona vængir voru nú lengi til í Ice in a bucket, hefuru prufað fleiri en eina svoleiðis? Eða býrðu kannske ekki á höfuðborgarsvæðinu? Þá veit ég eeeeekkert. :)

Re: Miði - MH - mig vantar

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Tja, já. Við erum að reyna að koma þeim í burtu.

Re: Miði - MH - mig vantar

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég veit um tvo miða á MR ball, einhver? :)

Re: Þessi fiskumræða...

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Veistu, það skiptir ekki máli hvort þú ein borðir mikið af fiski, þetta er bara meðaltal. Að meðaltali, það nær alls ekki yfir alla. Þótt það séu 10 manns sem borðar alltaf fisk, er síðan kannske 20 manns á móti sem borðar sjaldan eða aldrei fisk, t.d. Annars, já - Mér finnst fiskur fínn, bý í fiskiþorpi, pabbi og einn bróðir minn sjómenn svo ég hef lítið val. Svo vann ég líka í fiski í sumar, æði.

Re: æjji :(

í Rómantík fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þetta er bara hvítt venjulegt strokleður, bara kassinn á því er svona. 8-)

Re: Ein Spurning :)

í Rokk fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Jájá, alveg örugglega.

Re: Ein Spurning :)

í Rokk fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Það er þá alltaf hægt að niðurhala þeim, eða allavega ná í lögin - Það ætti ekki að vera neitt mál. :)

Re: Kemst ekki suður!

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Já, eiginlega. Ekkert til allavega, við erum að fara halda afmæli fyrir þá gömlu og erum alveg í vandræðum með það, erum eiginlega alveg komin í það að keyra bara til Egilsstaða og redda öllu sem vanntar í það þar.

Re: Kemst ekki suður!

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég fatta ekki, er samt búin að lesa 20x yfir. :(

Re: Ein Spurning :)

í Rokk fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Allavega Parachutes, A rush of blood to the head og X&Y er hægt að kaupa á íslandi. Ég veit ekki alveg með hina.

Re: Ein Spurning :)

í Rokk fyrir 19 árum, 3 mánuðum
The Safety EP (1998) Brothers and Sisters EP (1999) Blue Room EP (1999) - Þetta eru samt ekki beint diskar, bara svona eitthvað sem þeir hafa gefið út - Parachutes (2000) A Rush Of Blood To the Head (2002) X&Y (2005) - Þetta eru sem sagt geisladiskarnir þeirra -

Re: æjji :(

í Rómantík fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Kúl, ég á þannig strokleður - Það er kyngimagnað. :) En það er reyndar ekki um sjálfsmorð “Love is… Just the two of us”

Re: Kemst ekki suður!

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nope, eitthvað aðeins lengra frá allri menningu. :)

Re: Valentínusardaginn

í Rómantík fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ég bara hef ekkert hugsað útí þetta. Heh.

Re: Kemst ekki suður!

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ónei, þú býrð á akureyri. Það er ekki einu sinni matvörubúð lengur þar sem ég bý.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok