Æj, ég veit ekki. Bróðir minn og konan hans voru búin að vera trúlofuð í 15 ár áður en þau giftu sig. Það var þannig séð aldrei neitt “planað” hjá þeim að gifta sig, þótt þau væru trúlofuð, og konan var samt búin að biðja hans 2x akkúrat líka, og í bæði skiptin horfði hann á hana einsog á einhvern furðufugl. Þau áttu samt börn og allt. Og eru gift núna. Allt getur gerst, stundum þarf fólk bara meiri tíma. :)