Ég er búinn að vera að hlusta á nokkur af þessum lögum og ég ætla ekkert að fara að dæma þau. Ég verð hinsvegar að segja að það eru fáránlega léleg hljómgæði í þessu. Eins og þú segir það heyrist ekkert í trommunum og fleira. Ég ætla bara rétt að vona að það verði betri gæði á plötunni sjálfri, því að eins og þetta er núna er bara rugl. Ég er líka alveg sammála því að þeir ættu að láta Serj syngja meirihlutann, hann er einfaldlega of svalur og góður söngvari til að láta hann ekki syngja.