Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í kjaradeilu KÍ vegna Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands annars vegar og Launanefndar sveitarfélaga hins vegar. Samninganefndir FG og SÍ samþykktu laust fyrir miðnætti að verða við tilmælum ríkissáttasemjara um að fresta verkfalli uns atkvæðagreiðsla hefur farið fram um miðlunartillöguna. Ríkissáttasemjari sendir miðlunartillöguna hverjum atkvæðisbærum félagsmanni samkvæmt skrá FG og SÍ í pósti ásamt skýringum á efni hennar...