Hvernig veit ég hvort ég sé næm fyrir einhverju að handan? Ég hef oftar en einu sinni fundið fyrir því að það sé einhver í kringum mig. Er þetta eðlilegt? Eða er ég bara að fríka út og ætti að vera búin að færa lögheimili mitt í hvíta húsið með rauða þakinu. Ég fór um daginn í heimsókn í hús þar sem að mér leið mjög illa. Þá á ég við að um leið og ég stóð fyrir utan húsið þá varð ég hrædd. Mér leið ennþá verr þegar ég fór inn og það eina sem að ég hugsaði þegar ég var þarna inni var það að...