Hvernig veit ég hvort ég sé næm fyrir einhverju að handan?

Ég hef oftar en einu sinni fundið fyrir því að það sé einhver í kringum mig. Er þetta eðlilegt? Eða er ég bara að fríka út og ætti að vera búin að færa lögheimili mitt í hvíta húsið með rauða þakinu.

Ég fór um daginn í heimsókn í hús þar sem að mér leið mjög illa. Þá á ég við að um leið og ég stóð fyrir utan húsið þá varð ég hrædd. Mér leið ennþá verr þegar ég fór inn og það eina sem að ég hugsaði þegar ég var þarna inni var það að ég varð að komast út.
Ég hafði aldrei komið þarna áður og ég þekki ekki fólkið sem að býr þarna og hef aldrei heyrt neitt af því.
Allavegana þá gat ég ekki beðið eftir því að komast þarna út.
Þegar ég var komin út þá leið mér mun betur en mér fannst ég vera eitthvað svo þreitt. (Þetta var um miðjan dag).
Dagurinn leið og ég verð alltaf þreittari og þreittari. Mér fannst það svo sem ekkert athugavert. Nema hvað að snemma um kvöldið verð ég svo rosalega þreitt að ég sofna í sófanum og ég bókstaflega rotast. Þið vitið væntanlega hvernig það er að maður sofnar og svo daginn eftir þá hugsar maður vá ég bara steinrotaðist.

Jæja ég ligg þarna sofandi í sófanum og að sögn maka míns þá sest ég nokkrum sinnum upp í sófanum með galopin augun og blaðra einhverja bölvaða vitleysu. Svo legst mín bara niður og það er ekki séns að ná sambandi við mig. Hann reynir að vekja mig en ekkert gengur. Ég ligg bara þarna steinrotuð.

Síðar um nóttina hrekk ég nokkrum sinnum upp við það að mér finnst ég vera að kafna, síðan leggst ég bara niður og held áfram að sofa.
Þegar líðið er á nóttina vakna ég, sest upp og sé að maki minn er farin að sofa. Allt í einu verð ég rosaleg hrædd. Ég fer á salernið og kem svo fram og þá finnst mér í sekúndubrot eins og ég sjái einhvern sitja í sófanum þar sem ég lá. Mér krossbrá og ríndi betur í sófann. í sófanum var enginn en mér fannst eins og einhver væri þar.
Hér kemur tilfinning yfir mig eins og það sé fullt af fólki í kringum mig. Ég verð svo hrædd að ég hleyp inn í herbergi upp í rúm og reyni að sofna sem að tekst að lokum. Daginn eftir fann ég ekki fyrir neinu.

Þetta er ekki það eina sem að hefur gerst. Eftir þetta finnst mér ég finna fyrir fólki í kringum mig á ótrulegustu tímum.
Hvað segjið þið? Mælið þið með því að ég skipti um heimilisfang eða hvað?