Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

eot
eot Notandi frá fornöld 286 stig

Cabin Fever (2002) (26 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Cabin Fever Leikstjóri: Eli Roth Aðalhlutverk: Rider Strong og aðrir leikarar með minna eftirminnileg nöfn. Mig langaði ofsalega, ofsalega mikið til að elska Cabin Fever. Það er búið að vera að hæpa þessa mynd svakalega mikið upp í íslenskum fjölmiðlum undanfarið vegna þess að leikstjórinn, Eli Roth, fékk víst hugmyndina að henni þegar hann vann sem au pair á Selfossi fyrir nokkrum árum. Það er líka búið að vera hæpa mjög mikið upp að leikstjórar á borð við Peter Jackson, Quentin Tarantino...

Gothika (2003) (24 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Gothika Leikstjóri: Mathieu Kassovitz. Aðalhlutverk: Halle Berry, Robert Downey Jr., Charles S. Dutton, Bernard Hill, Penelope Cruz. “Gothika” er nýjasta myndin framleidd af Dark Castle fyrirtækinu sem áður hefur gefið út myndir á borð við “The House on Haunted Hill”, “Thirteen Ghosts” og “Ghost Ship” - allt myndir sem eru tæknilega mjög vel gerðar, en frekar ómerkilegar sögulega og leikstjórnarlega séð. “Gothika”, líkt og forverar sínir, lítur frábærlega vel út - kem betur að því síðar -...

FEARdotCOM (2002) (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
(Birtist fyrst á lingur.blogspot.com) FEARdotCOM Aðalhlutverk: Stephen Dorff, Natascha McElhone, Jeffrey Combs, Udo Kier. Leikstjóri: William Malone Það er svoldið síðan ég heyrði fyrst um myndina FEARdotCOM og þrátt fyrir aðallega lélega umsagnir þeirra sem eitthvað þóttust vita, þá hafði ég áhuga á að sjá myndina eingöngu vegna þess að, miðað við trailerinn, þá leit hún virkilega, virkilega vel út útlitslega séð. Svona soldið eins og Floria Sigismondi blandað saman við The Cell … Anyways,...

The Texas Chainsaw Massacre (2003) (11 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
The Texas Chainsaw Massacre Aðalhlutverk: Jessica Biel, Jonathan Tucker, R. Lee Ermey, Andrew Bryniarksi. Það var með mikilli eftirvæntingu sem ég fór að sjá endugerðinna af einni af mínum uppáhaldshrollvekjum, The Texas Chain Saw Massacre. Í allri sanngirni verð ég þó að viðurkenna það að þegar ég heyrði fyrst af því að þessi mynd yrði gerð þá átti ég ekki von á góðu. Reyndar átti ég von á einhverju hryllilegu: Leikstjórinn ferskur úr tónlistarbransanum, framleiðandinn Michael Bay einn af...

The Mothman Prophecies (2002) (26 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 1 mánuði
THE MOTHMAN PROPHECIES Leikstjóri: Mark Pellington Aðalhlutverk: Richard Gere, Laura Linney, Will Patton, Debra Messing, Lucinda Jenney, Alan Bates. Stundum koma út kvikmyndir sem þrátt fyrir ótvíræð gæði týnast einfaldlega í flórunni og margar þeirra finnast hreinlega ekki aftur. Þetta gerist ekki ósjaldan í hryllingsmyndageiranum, enda er megnið af myndunum sem þaðan kemur litið hornauga hvort eð er svo þegar út kemur virkilega góð hryllingsmynd eru líkurnar á því að almenningjur fái að...

Final Destination 2 (2003) (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 1 mánuði
FINAL DESTINATION 2 (2003) Leikstjóri: David R. Ellis Aðalhlutverk: Ali Larter, AJ Cook, Michael Landes og Tony Todd. Í kjölfar Scream-myndanna kom út heill hellingur af misgóðum eftirhermumyndum sem allar innihéldu fríðan hóp ungra, óþekktra leikara sem voru flestir myrtir á einn eða annan máta af geðveikum fjöldamorðingja. Ein af betri eftirhermunum var Final Destination sem ákvað að kasta burt millimanninum, þ.e. morðingjanum, og nota dauðann (afsakið, Dauðann) sem ill“menni” myndarinnar....

The Ring (2002) (12 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
THE RING (2002) Leikstjóri: Gore Verbinski Aðalhlutverk: Naomi Watts, David Dorfman, Martin Henderson, Brian Cox. Það er oft erfitt að vera hryllingsmyndafrík. Ennþá í dag eru hryllingsmyndir litnar hornauga og taldar til “síðri” tegunda kvikmynda. Þegar maður reynir að taka dæmi um “góðar” hryllingsmyndir þá lendir maður bara í útúrsnúningi: Silence of the Lambs og Se7en eru “dramatískir þrillerar”, The Exorcist og The Omen virka bara á kaþólskt-trúaða, Psycho er of gömul o.s.frv. Fyrir mér...

Interview with the Vampire (1994) (15 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
INTERVIEW WITH THE VAMPIRE (1994) Aðalhlutverk: Tom Cruise, Brad Pitt, Kirsten Dunst, Antonio Banderas, Christian Slater, Stephen Rea. Leikstjóri: Neil Jordan. Neil Jordan gerði Interview with the Vampire á eftir bestu mynd sinni, The Crying Game, og hvarf þar með aftur til róta sinna, nefnilega hina draumkenndu The Company of Wolves, eina eftirminnilegustu hrollvekju 9. áratugarins. Interview á margt sameiginlegt með Company: báðar myndirnar eru byggðar á skáldsögum sem tóku vel þekkt...

Shocker (1989) (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 2 mánuðum
SHOCKER (1989) Aðalhlutverk: Peter Berg, Mitch Pileggi, Cami Cooper, Michael Murphy. Leikstjóri: Wes Craven. Shocker kom út á því tímabili sem Wes Craven var ekki beint að gera sín bestu verk. Kom á eftir hinni áhugaverðu en frekar mislukkuðu The Serpent and the Rainbow og á undan People Under the Stairs sem var ívið betri, en alls ekki fullkomin. Shocker er afleiðing þess að Craven gerði samning við nýtt kvikmyndafyrirtæki sem leyfði honum að gera tvær myndir með frjálsar hendur sem er...

In Dreams (1999) (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
IN DREAMS (1999) Leikstjóri: Neil Jordan. Aðalhlutverk: Annette Bening, Robert Downey Jr., Aidan Quinn, Stephen Rea, Paul Guilfoyle. Draumar hafa alltaf þótt áhugaverð umfjöllunarefni kvikmyndagerðarmanna og þá sérstaklega þeirra sem gera hryllings-og spennumyndir. Hitchcock notaði súrrealísk draumaatriði í bæði Spellbound og Vertigo, Wes Craven gerði A Nightmare on Elm Street að einni eftirminnilegustu unglingahrollvekjum níunda áratugarins með því að bæta draumum inn í formúluna, og lengi...

Tenebrae (1982) (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
TENEBRAE (1982) Leikstjóri: Dario Argento Aðalhlutverk: Anthony Franciosa, Daria Nicolodi, Veronica Lario, John Saxon, Eva Robins, Ania Pieroni, John Steiner. Þegar Dario Argento gaf út Tenebrae árið 1982 var hann orðinn einn af vinsælustu leikstjórum Ítalíu og án efa virtastur landa hans sem unnu í hryllingsmyndabransanum. Með klassískar myndir eins og L’Uccello dalle Piume di Cristallo, Profondo Rosso og Suspiria að baki (allar hrikalega vinsælar í heimalandinu) var Argento á grænni grein...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok