Auðvitað skiptir útlitið máli - sérstaklega fyrst, en sem betur fer höfum við ekki öll sama smekk og fólk sem mér finnst fallegt getur öðrum þótt bara venjulegt eða jafnvel ljótt. Svo er það líka þannig að hverjum þykir sinn fugl fagur og þetta með “hjónasvip” er ekkert bull, því oft finnst manni fólk sem er líkt manns nánustu fallegt einfaldlega vegna þess að manni þykir svo vænt um það fólk. Við erum öll rosalega feimin við að játa að okkur finnist við sjálf bara svolítið sæt, en ég held...