Austurríska lagið hefur fengið mikla gagnrýni þar sem það er ekki nálægt því að vera “Eurovision vænt” lag. Margir, eins og ég, hlæja að laginu, og segja að það nái ekki langt.

Ég held hins vegar að þetta lag gæti komið á óvart þann 24. maí. Með því er ég ekki að segja að það vinni eða nái mjög ofarlega. Ég er að meina að það mundi vekja mikla athygli. Persónulega finnst mér þetta frábært lag til að hlusta á - einfaldlega fyndið og skemmtilegt. Það á augljóslega ekki heima í keppninni, en gæti átt möguleika í útvarpi.

er EINHVER sammála mér?