Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

annað lag... (3 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 1 mánuði
Jamm, þetta lag er kannski ekki það besta sem ég hef gert, en ég fíla það vel. Það næsta sem ég þori að fara að dansvænni tónlist :) <a href="http://www.simnet.is/st1/sherkan.htm">st1 sherkan</a

lag... (4 álit)

í Danstónlist fyrir 22 árum, 2 mánuðum
lag með st1, munnhol og hnífaklækir <a href="http://simnet.is/st1/strain.htm">s-train</a> legg þetta undir ykkar dóm. njótið (ef um ykkar tebolla er að ræða)

lestrarefni ykkar ? (16 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er sammála því að þetta áhugamál sé í svolítilli lægð, efast um að það sé um minnkandi bókaáhuga þar um að kenna, kannski erfitt að halda uppi fjörugum umræðum um bækur/bókmenntir því flóran er mikil og ekki lesa allir það sama og geta kannski þar af leiðandi ekki deilt skoðunum sínum sín á milli. Því miður er ég ekki með neina galdralausn :) En ég er svolítið forvitinn um hvað hugverjar séu að lesa þessa dagana ? Ég er sjálfur að lesa bókina ‘Before the beginning’ eftir Martin Rees. Í...

Coca Karma... (2 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég rakst á ansi athyglisverða og langa grein um daginn. Greinin, í mjög lausu máli, fjallar um Bob Kolody og baráttu hans við Coca-Cola vegna brota á höfundarréttarlögum. Reyndar snýst greinin út í þvílíkt allsherjar réttarhneyksli, þöggun stórfyrirtækja og mútuþægni dómara. Þetta er ákaflega yfirgripsmikil og LÖNG grein, en vel þess virði að hvortveggja lesa og bregðast við þessari grein. Slóðin er: http://www.guerrillanews.com/cocakarma/

Nýr Aphex Twin diskur (10 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég var á mínum daglega rúnti yfir uppáhalds síðurnar mínar og rekst á ansi gleðilega frétt á NME.com (af öllum..). Richard James er að fara að senda frá sér breiðskífu, tvöfalda (ef marka má fréttina). Platan mun heita ‘DRUKQS’ og er hún, að sögn fullunnin. Þetta verður fyrsta breiðskífa karlsins frá árinu 1996, þegar RDJ album kom út (come to daddy var náttúrulega ‘bara’ ep). Talsmaður tvíburans sagði að platan væri mjög fjölbreytt, að hún hefði element frá hinum diskunum, ásamt því að hann...

"áhorfandi" að leikriti Shakespheares (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hann sér nú, að hann er einn í dimmrauðum salnum. Dustar gruggugt ryk af minningum, af leiknum. Hann hefði betur átt að leika sitt hlutverk, en svaf í gegnum sýninguna.

the horror...the horror... (27 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jamm, ég var að enda við að lesa skoðanakönnunina um hver sé uppáhaldsmynd fólks, og allt er það gott og blessað. En ég er forvitinn, hver er VERSTA mynd sem þið hafið nokkurn tíma séð, mynd svo slæm að það jaðri við nauðgun. Ég sá eina slíka um daginn,..sú dæmalausa snilld heitir Pitch Black, og hvet ég þá sem ekki hafa áhuga á að missa sál sína í yfir 2 tíma, halda sig sem lengst frá henni,..þvílíkur annar eins viðbjóður! Einnig má nefna myndir eins og mission to mars. Ég vill einnig...

vantar einhverjum.... (0 álit)

í Quake og Doom fyrir 23 árum, 6 mánuðum
…hörku varnarmann í CTF?

Smá pæling/spurning (8 álit)

í Litbolti fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég fór núna fyrir skömmu í paintball, og verð ég að segja að þetta er klassa skemmtun, ég fór heim með kúlu á hausnum og kunningi minn með gat á honum, anyway, ég veit að þetta er mjög svo nýtilkomið hingað á skerið. En það var eitt sem fór ótrúlega í mig og aðra, grímurnar, fyllast móðu svo maður sér varla út úr augunum, skemmir þessa prýðilegu skemmtun talsvert. En ég var að pæla, er hægt að koma með sínar eigin græjur þangað, eins og grímur eða jafnvel eigin byssu + camo? Vona bara þegar...

Varðandi ep.II og III (2 álit)

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég hef verið að velta fyrir mér, sem mikill SW aðdáandi (síðan ég var 4 ára ´83) Þá hafa fáar myndir ollið jafn mikilli togstreitu hjá mér eins og Phantom… Hún leit í raun og veru út eins og teletubbies með geislasverð, þó vottaði að sjálfsögðu fyrir SW fílíngnum eins og við mátti búast. En hvað með áframhaldið? Ég er ekki að leggja á mig mikið til að finna út um plottið eða sögupersónurnar í II og III en er þess fullviss að einhverjir lesendur þessa korks gera það, og þessvegna langar mig...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok