Hann sér nú,
að hann er einn í dimmrauðum salnum.
Dustar gruggugt ryk af minningum,
af leiknum.

Hann hefði betur átt að leika sitt hlutverk,
en svaf í gegnum sýninguna.