Ég hef verið að velta fyrir mér, sem mikill SW aðdáandi (síðan ég var 4 ára ´83) Þá hafa fáar myndir ollið jafn mikilli togstreitu hjá mér eins og Phantom… Hún leit í raun og veru út eins og teletubbies með geislasverð, þó vottaði að sjálfsögðu fyrir SW fílíngnum eins og við mátti búast. En hvað með áframhaldið? Ég er ekki að leggja á mig mikið til að finna út um plottið eða sögupersónurnar í II og III en er þess fullviss að einhverjir lesendur þessa korks gera það, og þessvegna langar mig að spyrja: Verður Anakin Vader í II eða II, eða fer hann “to the dark side” í II en gengur skrefið til fulls í III? Either way þá hljómar þetta alltsaman eins og næstu myndir verða myrkari og ef Lucar ætlar að láta þetta alltsaman enda á einhverju bleikskýjuðu Hollywood tyggjópoppi þá missi ég alla trú á SW og mannkyninu í heild.