Ég er með T-Bird 1333MHz. Scorpio kassa frá Hugver. Silverado kælingu á örgjafa sem ég keyri á 8v. Eina kassavifu sem blæs inn köldu lofti og er hún keyrð á 6v. Hitinn hjá mér er um 43-45° og er þessi samsetning svotil hljóðlaus :). Ég gæti farið neðar með hitann með því að setja meiri volt á vifturnar en sé ekki tilgang í því þar sem þetta er perfect eins og það er. Var með Speezer viftu og var hún 5 sinnum háværri miðað við Silverado'inn. Silverado er dýrt dæmi, kostaði hingað komin um 12k...
Er engin búð á Íslandi sem selur alvöru kæliplötur og viftur eins og Alpha heatsinkana, Silverado, og nýjustu viftuna frá Papst sem er 800mm 12db td… Vantar almennilega búð sem selur svona hardcore stuff.
Ég á 6 x 256MB 133MHz SDRAM kubba. Sé ekki ástæðu að endurnýja allt dótið til að fá DDR sem er aðeins betra en SDRAM. Það kemur líka eitthvað betra en DDR fljótlega þannig að það er best að bíða. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..