Hehe! ég er 20, hef alltaf æft íþróttir en uppgötvaði lyftingar (alvöru) bara fyrir svona einu og hálfu ári síðan :) Er búin að ná ágætis árangri svosem, annars ætla ég mér nú stærri hluti en ég er að gera í dag, svo að ég er ekki alveg tilbúin í að hrósa sjálfri mér neitt í hástert ;) Markmiðið mitt í fyrstu var nú ekki beint að fara út í einhverjar ,,kraftlyftingar", heldur var fituprósentan orðin heldur há á miðað við ummál, hæð og þyngd, svo að ég fór á fullt að reyna að bæta á vöðvana...