Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Saklaus (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Sálin brýst um, þungur ekkinn kæfandi. Hjartað frosið, sprungið.. Reykjarmökkur í stað hugsana. Krumla læstist um innyflin, sölt tárin þrengja sér niður kinnarnar. Máttlaus líkaminn hættur að streitast á móti, uppgefinn.. Þú horfir á mig með heift í augum. Tilfinningalaus, vélrænn. Dæmdur til að deyða saklausar sálir..

Augnablik (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 12 mánuðum
augnablikið sem það tekur augu þín að blikka tár þín að renna hjarta þitt að slá varir þínar að bærast hugsanir þínar að eyðast von þína að deyja út lífsneistann að slokkna er augnablikið sem skipti engu máli, í lífi allra hinna..

Örvænting (? ekki alveg ákveðið enn:)) (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Ég geng eftir þröngstígu strætinu, Virðist sem ég sé sá eini á þessari leið. Straumurinn kemur á móti mér. Allt í einu er friðurinn rofinn í huga mér, Óttinn heltekur mig, læsist um mig, ég greikka sporið. Hleyp við fót. En það er of seint… Öskur stríðsmanns… Hníg svo niður.

Búningar deildarliða (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum
Ástæða þessara skrifa er sú að ég er að leita mér að Liverpool búningi! :) Ég er búin að hringja útum allar trissur á höfuðborgarsvæðinu og einnig á Akureyri, en hvergi virðast vera til búningar Liverpool, sama hvað ég reyni. Ég hringdi svo í Jóa Útherja, en á þeim bænum eru engir búningar fyrren í júní [í allra fyrsta lagi!] Ég vil endilega eignast búning.. og þá er ég að tala um rauða búninginn eða þann hvíta og bið þá sem hafa einhverjar upplýsingar um hvar þá er að finna að hafa samband...

Hvort skiptir þig meira máli? (0 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 1 mánuði

Frumraunin mín :Þ (7 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hvert eitt spor í mjúkri fönninni vísar þér leiðina til mín. En ef þú ert of lengi á leiðinni, verður fennt í sporin og ég horfin. endilega segiði mér skoðun ykkar, svo og hvað mætti betur fara… þetta er nebbla það fyrsta sem ég sendi hingað með kveðju Eingel

Alana (pælingar) (5 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þetta eru pælingar frá einni sem veit ekki hvað á nákvæmlega eftir að gerast með Alönu, til þeirra sem vita það ekki heldur! :) Hún sagði Lance frá þessu með hræðsluköstin, að hún hefði panikkerað þegar hún þekkti engan og svo framvegis, en sagði að núorðið gerðist þetta nær aldrei. Hann segir að þetta breyti engu í sambandi þeirra, og stingur því næst upp á því að þau fari saman í ferðalag, jafnvel til Las Vegas. Hún tekur vel í þá hugmynd fyrst, en daginn eftir, (allavega stuttu seinna)...

Kid Rock í Simpson´s... (2 álit)

í Teiknimyndir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þann 5. október síðastliðinn var gestaröddin í Simpson´s Kid Rock…og hann tók eitt eða fleiri…man ekki, lög í þættinum og í lokin, þegar creditlistinn kom, heyrðist lag með honum. Núna spyr ég, hvort einhver muni hvað þetta lag heitir, því mig langar til þess að downloada því… :) Þetta var nebbla alls ekki svo slæmt lag… ef þið vitið það…endilega skrifið mér línu… takk :) Kv. eingel

Cheyenne: (0 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 6 mánuðum

Einnota batterýhleðsla (3 álit)

í Farsímar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
ég sá auglýsingar í fóukus um daginn, svona einnota hleðslukubbur fyrir nokia síma eða eikkað. Kubbinum var stungið inn í símann og bara sett batterý á kubbinn sjálfan, ekkert stungið í samband eða neitt. Það var sagt að þetta fengist á bensínstöðvum, en ekkert meira tilgreint. Svo…núna er ég að velta fyrir mér, hvar fæst þetta og hvað kostar þetta???

Hætt við útgáfu Spiderman myndarinnar? (4 álit)

í Myndasögur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Heyrst hefur að frestað verði útgáfu spiderman myndarinnar vegna hryðjuverkanna í USA, vegna þessa að world trade center turnarnir koma víst við sögu. ég persónulega, veit ekki hvort eitthvað er hæft í þessum orðrómi en þetta hefur verið í umræðunni síðastliðna daga…

Er þessi spurning spurning? (0 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum

Garfield (a.k.a. Grettir) (4 álit)

í Myndasögur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Allir sannir aðdáendur Grettis og félaga ættu ekki að láta þessa vefsíðu framhjá sér fara: www.garfield.com …allt sem þú vildir vita um Gretti og allt um Gretti sem skiptir engu máli! Hægt að senda kort til vina, fara í leiki, fá sitt eigið netfang: notendanafn@catsrule.garfield.com :) og skoða myndasögur. Síðan er uppfærð daglega og því getur þú skoðað nýjustu myndasöguna samdægurs!
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok