Ástæða þessara skrifa er sú að ég er að leita mér að Liverpool búningi! :)
Ég er búin að hringja útum allar trissur á höfuðborgarsvæðinu og einnig á Akureyri, en hvergi virðast vera til búningar Liverpool, sama hvað ég reyni. Ég hringdi svo í Jóa Útherja, en á þeim bænum eru engir búningar fyrren í júní [í allra fyrsta lagi!]
Ég vil endilega eignast búning.. og þá er ég að tala um rauða búninginn eða þann hvíta og bið þá sem hafa einhverjar upplýsingar um hvar þá er að finna að hafa samband við mig..
því það gengur ekki að harður Liverpool áhangandi eigi ekki búning liðsins þegar kemur fram í úrslitabaráttu deildarinnar! ;)
En einnig langaði mig til að vita..
er þetta svona með alla búninga? Er virkilega enginn almennilegur söluaðili hér á landi?

með kveðju og von um hjálp..
eingel ;)